Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. september 2021

Útgáfudagur

30. september 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1085/2021

22. september 2021

REGLUR

um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að veita upplýsingar um áhættuþætti, áhættustýringu og eiginfjárstöðu, sbr. 18. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og VIII. hluta reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017.

2. gr. Upplýsingaskylda fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki skal birta þær upplýsingar um eiginfjárgrunn sem koma fram í reglugerð (ESB) nr. 1423/2013, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni, sbr. 3. gr.

Fjármálafyrirtæki, sem er alþjóðlega kerfislega mikilvægt, skal birta upplýsingar um þau viðmið sem notuð eru til að tilgreina alþjóðlega mikilvæg fyrirtæki sem koma fram í reglugerð (ESB) nr. 1030/2014, með síðari breytingum, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni, sbr. 3. gr.

Fjármálafyrirtæki, sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka, skal birta þær upplýsingar um eiginfjáraukann sem koma fram í reglugerð (ESB) 2015/1555, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni, sbr. 3. gr.

Fjármálafyrirtæki skal birta upplýsingar um vogunarhlutfall sem koma fram í reglugerð (ESB) 2016/200, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni, sbr. 3. gr.

Fjármálafyrirtæki skal birta þær upplýsingar um eignir með og án veðbanda sem koma fram í reglugerð (ESB) 2017/2295, með þeim hætti og með þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerðinni, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1423/2013 frá 20. desember 2013, um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi gagnsæi vegna eiginfjárkrafna fjármálafyrirtækja sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1030/2014 frá 29. september 2014, um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi samræmd form og dagsetningar vegna birtingar gilda sem notuð eru til að tilgreina alþjóðleg kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1555 frá 28. maí 2015, um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla vegna birtingar upplýsinga í tengslum við skyldu fjármálafyrirtækja til að viðhalda sveiflujöfnunarauka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/200 frá 15. febrúar 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga um vogunarhlutfall fjármálafyrirtækja, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
  5. Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/818 frá 17. maí 2016 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1030/2014 um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi samræmd form og dagsetningar birtingar gilda sem notuð eru til að greina alþjóðleg kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2295 frá 4. september 2017 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir upplýsingagjöf um eignir með veðböndum og veðbandalausar eignir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1423/2013, nr. 1030/2014, 2015/1555, 2016/200, 2016/818 og 2017/2295 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32013R1423, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 355, þann 31. desember 2013, bls. 60-88;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32014R1030, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 284, þann 30. september 2014, bls. 14-21;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32015R1555, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 244, þann 19. september 2015, bls. 1-8;
  4. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32016R0200, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 39, þann 16. febrúar 2016, bls. 5-25;
  5. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32016R0818, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 136, þann 25. maí 2016, bls. 4-7; og
  6. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32017R2295, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 329, þann 13. desember 2017, bls. 6-19.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í b-lið 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 506/2017 um tæknilega staðla varðandi upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja, með síðari breytingum.

Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2021

Tengd mál