Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skagafjörður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Skagafjörður
Undirritunardagur
9. júní 2026
Útgáfudagur
16. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 686/2026
9. júní 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Skagafirði.
Breyting á deiliskipulagi – Sauðárkrókshöfn, hafnarsvæði, Háeyri 6 og 8.
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 48. fundi sínum 22. apríl 2026, breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar, hafnarsvæði, vegna Háeyrar 6 og 8, í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Skipulagsuppdráttur sýnir lóðamörk, byggingarreiti og víkjandi byggingar innan breytingarsvæðis ásamt helstu skilmálum. Breytingin skapar grundvöll til uppbyggingar á lóðinni í samræmi við framtíðarhugmyndir lóðarhafa. Lóðirnar Háeyri 6 og Háeyri 8, sem er óbyggð, munu sameinast undir landnúmeri og staðfangi Háeyrar 6. Á lóðinni verður einn 1.129,9 m² byggingarreitur. Hámarksnýtingarhlutfall lóðar verður 0,65 og hámarksstærð botnflatar verður 600 m².
Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Skagafirði, 9. júní 2026.
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 16. júní 2026