Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Fasteignir, Þjóðskrá
Undirritunardagur
2. mars 2012
Útgáfudagur
19. mars 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 265/2012
2. mars 2012
GJALDSKRÁ
vegna þjónustu Þjóðskrár Íslands.
I. KAFLI
Gjald
fyrir
afnot
matsfjárhæða
og
matskerfa,
skráningu
nýrra
fasteigna
og
vélrænna
fyrirspurna
úr
þinglýsingabók.
1. gr.
Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta.
Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.
2. gr.
Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi.
Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi; skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.
3. gr.
Gjald fyrir stofnun fasteignar.
| Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar í fasteignaskrá | kr. 25.000 |
4. gr.
Gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir.
Viðskiptavinir skulu greiða gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók, sbr. 24. gr. laga, nr. 6/2001.
II. KAFLI
Fasteignahluti fasteignaskrár.
5. gr.
Einingaverð úr fasteignahluta fasteignaskrár.
Greiða skal sérstakt einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignahluta fasteignaskrár. Þessi svæði eru:
| a) | mannvirkja- og lóðasvæði, | |
| b) | matssvæði, | |
| c) | eigendasvæði, | |
| d) | önnur svæði. |
Einingaverð reiknast í samræmi við fjölda svæða sem upplýsingar um hverja fasteign eru sóttar úr og við fjölda fasteigna á eftirfarandi hátt miðað við notkun á einu almanaksári:
| Fjöldi fasteigna | Eitt svæði | Tvö svæði | Þrjú svæði | Fjögur svæði |
| 1-70.000 | 20 kr. | 40 kr. | 60 kr. | 80 kr. |
| 70.001-140.000 | 17 kr. | 34 kr. | 51 kr. | 68 kr. |
| Fleiri en 140.000 | 14 kr. | 28 kr. | 42 kr. | 56 kr. |
6. gr.
Aðgangur að upplýsingum með vefuppfletti á heimasíðu Þjóðskrár Íslands.
Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 5. gr.
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) | kr. | 60 |
| Eigendasaga fasteignar | kr. | 60 |
| Breytingasaga fasteignar | kr. | 60 |
7. gr.
Aðgangur að upplýsingum með skeytasendingum með vefþjónustum.
Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 5. gr.
| Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 |
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
8. gr.
Úrtak
úr
fasteignahluta
fasteignaskrár
sem
sent
er
með
reglubundnu
millibili
(gagnaveitur).
Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar skal vera skv. 5. gr.
| Stofngjald gagnaveitu | kr. | 160.000 |
Gera skal skriflegan samning þar sem fram komi heildargreiðsla fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.
III. KAFLI
Þinglýsingarhluti fasteignaskrár.
9. gr.
Einingaverð úr þinglýsingarhluta fasteignaskrár.
Gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingarhluta fasteignaskrár, sbr. 24. gr. laga nr. 6/2001.
| Staðfesting á tilteknum upplýsingum um eina fasteign | kr. | 80 |
10. gr.
Aðgangur að upplýsingum með vefuppfletti á heimasíðu Þjóðskrár Íslands.
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 9. gr.
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) | kr. | 60 |
| Eigendasaga fasteignar | kr. | 60 |
| Breytingasaga fasteignar | kr. | 60 |
11. gr.
Aðgangur að upplýsingum með skeytasendingum með vefþjónustum.
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 9. gr.
| Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 |
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
12. gr.
Úrtak úr þinglýsingarhluta fasteignaskrár sem sent er reglubundið (gagnaveitur).
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 9. gr.
| Stofngjald gagnaveitu | kr. | 160.000 |
Gera skal skriflegan samning þar sem fram komi heildargreiðsla fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.
IV. KAFLI
Kaupskrárhluti fasteignaskrár.
13. gr.
Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár.
Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda fasteigna sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi:
| Einingaverð úr kaupskrárhluta | kr. | 100 |
14. gr.
Aðgangur að upplýsingum með skeytasendingum með vefþjónustum.
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 13. gr.
| Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 |
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
15. gr.
Úrtak úr kaupskrárhluta fasteignaskrár sem sent er reglubundið (gagnaveitur).
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 13. gr.
| Stofngjald gagnaveitu | kr. | 160.000 |
Gera skal skriflegan samning þar sem fram komi heildargreiðsla fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.
V. KAFLI
Staðfangahluti fasteignaskrár.
16. gr.
Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár.
Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda hnita sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi:
| Fjöldi hnita | Einingaverð kr. |
| Af fyrstu 5.000 | 8 |
| Af næstu 10.000 | 4 |
| Af næstu 20.000 | 2 |
| Af næstu 40.000 og umfram það | 1 |
| Afhendingargjald gagna | kr. | 21.200 |
| Gjald fyrir áritun á geisladisk | kr. | 1.000 |
17. gr.
Aðgangur að upplýsingum með skeytasendingum með vefþjónustu.
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 16. gr.
| Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 |
| Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 2.700 |
| Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
18. gr.
Úrtak úr staðfangahluta fasteignaskrár sem sent er reglubundið (gagnaveitur).
Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 16. gr.
| Stofngjald gagnaveitu | kr. | 160.000 |
Gera skal skriflegan samning þar sem fram komi heildargreiðsla fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.
VI. KAFLI
Gjald fyrir afnot af þjóðskrá.
19. gr.
Rafræn afnot af nafnaskrár þjóðskrár.
Með skriflegum samningi um rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár er afhent heildarskrá og breytingarskrá með reglubundnu millibili gegn árgjaldi, sbr. töflu:
| Gjald fyrir starfsstöð kr. | Gjald fyrir útibú kr. | |
| Grunnskrá | 79.000 | 20.000 |
| Viðbótarupplýsingar A | 95.000 | 20.000 |
| Viðbótarupplýsingar B | 158.000 | 20.000 |
| Horfinnaskrá 1 | 20.000 | 18.000 |
| Horfinnaskrá 2 | 30.000 | 18.000 |
| Horfinnaskrá 3 | 75.000 | 18.000 |
| Utangarðsskrá 1 | 10.000 | 5.000 |
| Utangarðsskrá 2 | 17.000 | 5.000 |
Grunngjald er greitt fyrir aðalstarfsstöð og auk þess útibúsgjald fyrir hverja starfsstöð sé notandi með fleiri starfsstöðvar. Aðili sem er með rekstur innan skilgreindrar starfsstöðvar á annarri kennitölu en þeirrar starfsstöðvar skal greiða útibúsgjald.
20. gr.
Einingaverð úr þjóðskrá.
Með skriflegum samningi um heimild til miðlunar gagna þjóðskrár í lokuðum uppflettikerfum skal greiða sérstakt einingaverð. Einingaverð skal vera fyrir upplýsingar úr eftirfarandi svæðum í þjóðskrá:
| Grunnupplýsingasvæði (s.s. nafn, heimilisfang, póstfang, bannmerking o.fl.) | kr. | 6 |
| Viðbótarupplýsingasvæði (s.s. fjölskyldunúmer, makakennitala, kyn o.fl.) | kr. | 2 |
Einingaverð reiknast í samræmi við fjölda uppflettinga sem sóttar eru úr lokuðu uppflettikerfunum og skal greiðsla koma fyrir mánaðarlega.
21. gr.
Úrtök úr þjóðskrá.
Fyrir rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár til vinnslu úrtaksgagna og til póstdreifingar skal greiða sérstakt upphafsgjald og einingaverð. Einingaverðið fyrir upplýsingar úr hverju svæði þjóðskrár skal vera skv. 20. gr.
| Upphafsgjald (innifalið allt að 500 nöfn) | kr. | 7.500 |
VII. KAFLI
Ýmis ákvæði.
22. gr.
Sérvinnslur úr fasteignaskrá.
| Eignastöðuvottorð: | ||
| Fyrir hverja kennitölu | kr. | 2.100 |
| Viðbótargjald fyrir hverja færslu | kr. | 40 |
| Rafræn afhending eignastöðuvottorðs til miðlara: | ||
| Fyrir hverja kennitölu | kr. | 500 |
| Viðbótargjald fyrir hverja færslu | kr. | 40 |
| Eignasöguvottorð: | ||
| Fyrir hverja kennitölu | kr. | 3.200 |
| Viðbótargjald fyrir hverja færslu | kr. | 40 |
23. gr.
Samanburðarvinnslur úr fasteignaskrá.
| Stofngjald fyrir staðfestingar á upplýsingum um tiltekna fasteign | kr. | 18.200 |
| Gjald fyrir hverja samanburðarfærslu úr hverju svæði | kr. | 40 |
Ef óskað er eftir viðbótarupplýsingum er einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá skv. II.-V. kafla.
24. gr.
Aðrar sérvinnslur.
Um einingaverð upplýsinga úr fasteignaskrá og þjóðskrá fer skv. II.-VI. kafla.
| Byrjunargjald þar með innifalið 2 klst. vinna sérfræðings | kr. | 28.000 |
| Límmiðagjald pr. stk. | kr. | 10 |
Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum þarf að gera um það skriflegan samning þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu:
| Fjöldi afhendinga | Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar |
| 1 afhending á ári | 100% gjald fyrir 1. afhendingu |
| 2-4 afhendingar á ári | 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu |
| 5-26 afhendingar á ári | 50% afsláttur af gjaldi fyrir 5.-26. afhendingu |
| 27 afhendingar og fleiri á ári | 75% afsláttur af gjaldi fyrir 27. og síðari afhendingar |
25. gr.
Tímavinna.
| Tímagjald almennur starfsmaður pr. klst. | kr. | 6.500 |
| Tímagjald sérfræðingur pr. klst. | kr. | 9.500 |
26. gr.
Vottorð, heimilisfangaleit og ljósrit.
| Vottorð úr þjóðskrá (sbr. lista á heimasíðu) | kr. | 900 |
| Ítarleg vottorð úr þjóðskrá (sbr. lista á heimasíðu) | kr. | 1.800 |
| Vottorð úr fasteignaskrá | kr. | 1.000 |
| Leit að heimilisfangi | kr. | 500 |
| Ljósrit | kr. | 250 |
| Staðfest ljósrit úr skrám | kr. | 600 |
Vottorð sem krefjast sérvinnslu taka gjald skv. tímavinnu, sbr. 25. gr.
27. gr.
Skilríki.
| Nafnskírteini | kr. | 3.300 |
28. gr.
Endursöluaðilar á upplýsingum úr skrám Þjóðskrár Íslands.
Endursöluaðilar eru þeir aðilar sem hafa milligöngu um sölu upplýsinga til endanotenda í áskrift.
Árgjald endursöluaðila er kr. 271.200. Gera þarf samning við Þjóðskrá Íslands um endursölu upplýsinga.
29. gr.
Heimild til samningagerðar.
Þjóðskrá Íslands er heimilt að gera sérstaka samninga um upplýsingamiðlun, sem víkja frá gjaldskrá þessari, við skráningaraðila.
30. gr.
Undanþágur frá gjaldskrá.
Þjóðskrá Íslands er heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:
- Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
- Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
- Fjölmiðlum, ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
31. gr.
Lagaheimild og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 24. gr. laga, nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum, og 3. mgr. 19. gr. laga nr. 54/1962, um þjóðskrá og almannaskráningu, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. apríl 2012. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1174/2008 um sama efni að hluta til.
Innanríkisráðuneytinu, 2. mars 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 19. mars 2012