Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. september 2021

Útgáfudagur

30. september 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1086/2021

22. september 2021

REGLUR

um útlánaáhættu fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu í samræmi við ákvæði reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Útreikningur á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu.

Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu skal fylgja ákvæðum reglugerða (ESB) sem tilgreindar eru í 3. gr.

Við mat á mikilvægi lánaskuldbindingar sem er komin fram yfir gjalddaga skal fjármálafyrirtæki miða bæði við 1% af heildarskuldbindingum lántaka og 15.000 kr. fyrir smásöluáhættuskuldbindingar og 75.000 kr. fyrir aðrar skuldbindingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/171, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 183/2014 frá 20. desember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina útreikningana á sértækum og almennum leiðréttingum á útlánaáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 285-288.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/585 frá 18. desember 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tilgreiningu á áhættutímabili tryggingarfjár, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 254-256.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1646 frá 13. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar aðalvísitölur og viðurkenndar kauphallir í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 373-383.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/171 frá 19. október 2017 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 um tæknilega eftirlitsstaðla fyrir mikilvægismörkin fyrir lánaskuldbindingar sem komnar eru fram yfir gjalddaga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020, með eftirfarandi aðlögunum samkvæmt ákvörðuninni:

Í 6. gr. í stað orðanna „31. desember 2020“, að því er EFTA-ríkin varðar koma orðin: 31. desember á síðara árinu á eftir því ári þegar ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020 tekur gildi.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/171 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32018R0171, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 32, þann 6. febrúar 2018, bls. 1-5.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í f-lið 2. mgr. og b-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 508/2017 um tæknilega staðla vegna útlánaáhættu.

Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2021

Tengd mál