Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húnabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Húnavatnssýslur, Byggingarmál, Mannvirki

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

30. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1704/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

Húnabyggðar fyrir afgreiðslu, leyfisveitingar og þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa.

1. gr. Almenn ákvæði.

1.1. Vegna byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.

1.2. Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við viðskiptavini sveitarfélagsins.

2. gr. Skilgreiningar.

2.1. Afgreiðslugjald: Gjald sem greiðist við móttöku umsóknar um byggingarleyfi, framkvæmdaleyfi, skipulag eða skipulagsbreytingu. Í gjaldinu felst kostnaður sveitarfélagsins við móttöku og yfirferð erindisins.

2.2. Úttektargjald: Gjald sem greiðist vegna úttektar byggingarfulltrúa á framkvæmda stað.

2.3. Umsýslu- og auglýsingakostnaður: Kostnaður sem fellur til innan sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingu auglýsinga, póstsendingar og aðra umsýslu.

2.4. Auka yfirferð: Yfirferð breyttra skipulagsgagna þar sem umsókn og móttaka gagna hefur áður átt sér stað.

3. gr. Byggingarleyfis- og byggingarheimildargjöld.

3.1. Samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða byggingarleyfis- og byggingarheimildargjöld fyrir útgáfu á byggingarleyfi/byggingarheimild sem byggingarfulltrúi veitir. Innifalið í byggingarleyfis- og byggingarheimildargjaldi er ein yfirferð aðaluppdrátta, samþykkt byggingaráforma og útgáfa byggingarleyfis/byggingarheimild, hæðarsetning og útsetning lóðar, skráning mannvirkja, stöðuskoðanir og vottorð um öryggis- og lokaúttekt.

        Fyrir byggingarleyfi/byggingarheimild nýrra húsa, viðbygginga, breytinga húsa, verulegra breytinga innan lóða og samþykki fyrir breyttri notkun greiðist fast gjald 88.980 kr. Að auki greiðist fyrir hvern fermetra nýbygginga og viðbygginga skv. eftirfarandi:

Nýbygging eða viðbygging íbúðarhúsnæðis: 540 kr. pr. m² brúttó
Iðnaðar-, þjónustu- og landbúnaðarbyggingar: 400 kr. pr. m² brúttó

3.2. Greiða skal afgreiðslu- og þjónustugjöld fyrir þjónustu og leyfisveitingu sem byggingarfulltrúi veitir umfram það sem innifalið er í byggingarleyfisgjaldi:

Afgreiðslugjald 17.800 kr.
Endurtekning á yfirferð uppdrátta 17.800 kr.
Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 2 til 4 eignir í húsi 41.520 kr.
Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 5 eða fleiri eignir í húsi 59.320 kr.
Endurtekin yfirferð á eignaskiptayfirlýsingu 17.800 kr.
Úttekt vegna byggingarstjóraskipta 35.590 kr.
Endurtekning lokaúttektar 35.590 kr.
Stöðuúttekt 35.590 kr.
Vottorð, önnur en þau sem fram koma í gjaldskrá 35.590 kr.
Fyrir hverja aukaútsetningu lóðar/húss; pr. mælingu skv. reikningi
Afgreiðslugjald vegna tilkynntra framkvæmda 35.590 kr.
Afgreiðslugjald húsa sem eru byggð utan lóðar og ætluð til flutnings úr héraði 94.910 kr.
Stöðuleyfi; gámar 40 fet, hús, bátar, hjólhýsi, sumarhús, söluvagnar o.fl. 35.590 kr.
Útprentun uppdrátta:  
A0 1.140 kr./blað
A1 830 kr./blað
A2 420 kr./blað
A3 160 kr./blað

       Heimilt er að leggja aukagjald á umsækjanda vegna aðkeyptrar vinnu skv. útlögðum kostnaði. Heimilt er að innheimta tímagjald 17.800 kr. á klukkustund vegna vinnu byggingarfulltrúa sem ekki er skilgreind í gjaldskrá og vinnu sem er veruleg umfram gjaldskrá.

       Stöðuleyfi er að jafnaði veitt til eins árs.

3.3. Fermetragjald skv. gr. 3.2. reiknast af brúttóflatarmáli skv. lokunarflokki A skv. gr. 4.4. í ÍST50.

3.4. Stöðuleyfi til eins árs er miðað við hverja einingu, þar sem ein eining getur til dæmis verið einn gámur af mörgum í vinnubúðum. Álögð gjöld skv. 51. gr. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um veitingu stöðuleyfis skulu greidd áður en leyfi er gefið út.

3.5. Byggingarleyfisgjald samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða fyrir útgáfu byggingarleyfis.

3.6. Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu byggingarleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu byggingarleyfis.

3.7. Fyrir yfirferð nýrra eða breyttra hönnunargagna eftir útgáfu byggingarleyfis greiðist tímagjald 17.800 kr.

3.8. Vegna aðkeyptrar vinnu við útgáfu byggingarleyfis verður innheimt sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.

4. gr. Kostnaður vegna skipulagsvinnu.

4.1. Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.

4.2. Skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

4.3. Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 17.800 kr. á klukkustund eða gjald skv. reikningi.

4.4. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:

Afgreiðslugjald 17.800 kr.
Tímagjald vegna landmælinga og útsetningar lóða 17.800 kr.
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 272.860 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 88.980 kr.
Akstursgjald pr. km skv. ferðakostnaðarnefnd hverju sinni (t.d. vegna landmælinga o.þ.l.) 144 kr.

4.5. Kostnaður vegna nýs deiliskipulags:

Afgreiðslugjald 17.800 kr.
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald skv. reikningi
Nýtt deiliskipulag án lýsingar og kynningar, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 308.450 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 177.950 kr.

4.6. Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi:

Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 177.950 kr.

4.7. Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi:

Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með grenndarkynningu 83.040 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 án grenndarkynningar 35.590 kr.

4.8. Kostnaður vegna grenndarkynningar:

Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, deiliskipulag ekki fyrir hendi 59.320 kr.

4.9. Kostnaður lóðamála:

Afgreiðslugjald 17.800 kr.
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna á grundvelli deiliskipulags, grunngjald 35.590 kr.
Landnúmer umfram eitt (pr. lóð) 11.860 kr.
Breyting á skráningu í Landskrá fasteigna 17.800 kr.

5. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.

5.1. Skipulagsfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.

5.2. Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.

5.3. Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.

5.4. Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins.

5.5. Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir:

Afgreiðslugjald 17.800 kr.
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, viðmiðunargjald 142.360 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald 59.320 kr.
Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í framkvæmdaleyfisgjaldi 17.800 kr.

6. gr. Gjalddagi og lögveð.

6.1. Gjalddagi afgreiðslugjalds er við móttöku umsókna.

6.2. Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða afgreiðslu erindis.

6.3. Byggingarleyfisgjöld skv. 3. gr. skal greiða fyrir útgáfu byggingarleyfis.

6.4. Gjöld skv. 4. gr. falla í gjalddaga þegar sveitarstjórn hefur samþykkt erindi umsækjanda um að láta hefja vinnu við nýtt deiliskipulag, breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi eða grenndarkynningu.

6.5. Framkvæmdaleyfisgjald skv. 5. gr. skal greiða fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis.

6.6. Gjalddagi annarra leyfisgjalda er við útgáfu leyfis.

6.7. Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, leyfi falli úr gildi eða umsókn dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.

6.8. Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur.

6.9. Gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi.

7. gr. Verðlagsbreytingar.

7.1. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu með grunnvísitölu 126,4 stig í nóvember 2025. Gjöldin taka breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á vísitölunni. Endurskoðaðar fjárhæðir gjalda skulu námundaðar í næsta heila hundrað.

8. gr. Gildistaka o.fl.

8.1. Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Húnabyggðar 15. desember 2025 í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslög nr. 123/2010. Gjaldskráin tekur gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Með gjaldskrá þessari fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1804/2024.

Blönduósi 15. desember 2025.

Pétur Arason, sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026

Tengd mál