Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

21. mars 2025

Útgáfudagur

24. mars 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 306/2025

21. mars 2025

AUGLÝSING

um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar og fjárlög fyrir árið 2025 hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem hér segir:

a) Niðurgreiðsla á raforku til húshitunar:
á veitusvæði HS Veitna 8,53 kr./kWst.,
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í dreifbýli* 11,89 kr./kWst.,
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í þéttbýli 9,18 kr./kWst.,
á veitusvæði RARIK í dreifbýli* 12,26 kr./kWst.,
á veitusvæði RARIK í þéttbýli 9,01 kr./kWst.,
á veitusvæði Veitna ohf. 8,75 kr./kWst.
* Niðurgreiðslur í dreifbýli taka mið af dreifbýlisframlagi eins og það var 31. desember 2024 hjá dreifiveitum með heimild til dreifbýlisgjaldskrár.
b) Niðurgreiðsla á vatni frá kyntum hitaveitum:
RARIK 11,05 kr./kWst.,
Orkubú Vestfjarða 8,65 kr./kWst.,
HS Veitur 293 kr./m³.
c) Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar.
Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar tekur mið af meðalverði niðurgreiddrar raforku til húshitunar í dreifbýli, nýtni olíuhitunarkerfis og olíuverðs í hverjum ársfjórðungi samkvæmt útreikningum Umhverfis- og orkustofnunar.
d) Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis.
Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis skal vera 2,0 kr./kWst.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, og fjárlög fyrir árið 2025, hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að hámarksfjöldi niðurgreiddra kWst./ári til hitunar verði 40.000 kWst. sem svarar til 888 m³/ári hjá kyntum hitaveitum og 4.480 lítrar af olíu á ári hjá þeim sem hita með olíu.

Auglýsing þessi gildir frá 1. mars 2025 og kemur í stað auglýsingar sama efnis, nr. 51/2025.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 21. mars 2025.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 24. mars 2025

Tengd mál