Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Lögreglumál, Opinber stjórnsýsla
Undirritunardagur
27. maí 2014
Útgáfudagur
30. maí 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 51/2014
27. maí 2014
LÖG
um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (fækkun lögregluumdæma, aðskilnaður embætta lögreglustjóra og sýslumanna, hæfiskröfur).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
Í stað orðanna „3. mgr.“ og „4. mgr.“ í 3. gr. laganna kemur: 4. mgr.; og: 5. mgr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
- F-liður 2. mgr. orðast svo: að starfrækja hæfnisnefnd sem veitir lögreglustjórum ráðgefandi álit um hæfni umsækjanda við skipun í störf lögreglumanna skv. 28. gr. Niðurstaða hæfnisnefndar er ráðgefandi við skipun í embætti. Ráðherra setur reglur um skipan og störf hæfnisnefndarinnar þar sem m.a. er fjallað um skipun nefndar, hæfi nefndarmanna, verkefni og málsmeðferð.
-
4.
mgr.
orðast
svo:
Heimilt er að skipa aðstoðarríkislögreglustjóra sem er staðgengill ríkislögreglustjóra.
3. gr.
6. gr. laganna orðast svo:
Landið skiptist í níu lögregluumdæmi. Með lögreglustjórn fara lögreglustjórar sem hér segir:
- Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
- Lögreglustjórinn á Vesturlandi.
- Lögreglustjórinn á Vestfjörðum.
- Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra.
- Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra.
- Lögreglustjórinn á Austurlandi.
- Lögreglustjórinn á Suðurlandi.
- Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
- Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum.
Umdæmamörk
lögregluembætta
skulu
ákveðin
í
reglugerð
sem
ráðherra
setur
með
hliðsjón
af
skipulagi
annarrar
opinberrar
þjónustu
í
umdæmum
og
að
höfðu
samráði
við
lögreglustjóra,
Samband
íslenskra
sveitarfélaga
og
landshlutasamtök
sveitarfélaga.
Ráðherra
ákveður
í
reglugerð
hvar
aðalstöð
lögreglustjóra
skal
staðsett
og
hvar
lögreglustöðvar
verða
starfræktar,
að
höfðu
samráði
við
lögreglustjóra.
Lögreglustjóri
ákveður
hvaða
starfsfólk
hefur
aðsetur
á
aðalstöð
lögreglu
annars
vegar
og
á
lögreglustöðvum
hins
vegar.
Við
embætti
lögreglustjórans
á
höfuðborgarsvæðinu
og
á
Suðurnesjum
er
heimilt
að
skipa
aðstoðarlögreglustjóra.
Aðstoðarlögreglustjóri
er
staðgengill
lögreglustjóra,
sbr.
þó
3.
mgr.
28.
gr.
Öðrum
lögreglustjórum
er
heimilt
að
ákveða
að
starfsmaður
embættisins
sé
staðgengill
lögreglustjóra
enda
fullnægi
hann
skilyrðum
2.
mgr.
28.
gr.
Lögreglustjórar
fara
með
stjórn
lögregluliðs,
hver
í
sínu
umdæmi.
Þeir
annast
daglega
stjórn
og
rekstur
lögreglunnar
í
umdæminu
og
bera
ábyrgð
á
framkvæmd
lögreglustarfa
innan
þess.
Störf
lögreglu
skulu
samhæfð
og
samræmd
eftir
því
sem
við
verður
komið.
Ráðherra
setur
nánari
reglur
um
fyrirkomulag
samvinnu
lögregluembætta,
að
fengnum
tillögum
ríkislögreglustjóra.
Lögreglustjórar
fara
með
yfirstjórn
leitar-
og
björgunaraðgerða
á
landi.
Um
björgun
sem
heyrir
undir
skipulag
almannavarna
gilda
sérstök
lög.
Ráðherra
setur
reglur
um
samstarf
lögreglu
og
björgunarsveita.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
-
1.
mgr.
orðast
svo:
Lögreglan annast rannsókn brota í samráði við ákærendur. Brot skal rannsaka í því umdæmi þar sem þau eru framin, sbr. þó ákvæði b-liðar 2. mgr. 5. gr. Ráðherra setur nánari reglur samkvæmt tillögu ríkissaksóknara um hvernig stjórn rannsóknar skuli háttað, hvenær brot skuli rannsakað undir stjórn ríkislögreglustjóra skv. b-lið 2. mgr. 5. gr. og um rannsóknaraðstoð. Ráðherra setur samkvæmt tillögu ríkissaksóknara nánari reglur um stjórn lögreglurannsókna og samvinnu lögreglustjóra við rannsókn sakamála. Mæli sérstakar ástæður með því er ráðherra heimilt að tillögu ríkissaksóknara að kveða á um að rannsókn tiltekinna brotaflokka í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra og í Vestmannaeyjum verði rannsökuð í öðru umdæmi. - 2.–5. mgr. falla brott.
5. gr.
Í stað orðsins „aðstoðarríkislögreglustjórar“ í 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: aðstoðarríkislögreglustjóri.6. gr.
1. mgr. 12. gr. laganna orðast svo:
Í hverju lögregluumdæmi skulu starfa ein eða fleiri samstarfsnefndir um málefni lögreglunnar. Í samstarfsnefnd skulu sitja lögreglustjóri viðkomandi lögregluumdæmis, sem jafnframt er formaður hennar, og sveitarstjórar þeirra sveitarfélaga sem eru í lögregluumdæminu eða eru á því svæði þar sem nefndin starfar. Fundi skal halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári.
7. gr.
1.–4. mgr. 28. gr. laganna orðast svo:
Ráðherra
skipar
ríkislögreglustjóra
og
lögreglustjóra
til
fimm
ára
í
senn.
Ráðherra
er
heimilt
að
skipa
aðstoðarríkislögreglustjóra,
sbr.
4.
mgr.
5.
gr.,
og
aðstoðarlögreglustjóra
á
höfuðborgarsvæðinu
og
Suðurnesjum
til
fimm
ára
í
senn,
sbr.
5.
mgr.
6.
gr.
Ríkislögreglustjóri,
aðstoðarríkislögreglustjóri,
lögreglustjórar,
aðstoðarlögreglustjórar
sem
eru
staðgenglar
lögreglustjóra
og
skólastjóri
Lögregluskóla
ríkisins
skulu
auk
almennra
hæfisskilyrða
til
þess
að
hljóta
skipun
í
embætti
á
vegum
ríkisins
jafnframt
fullnægja
eftirtöldum
skilyrðum:
- hafa náð 30 ára aldri,
- hafa íslenskan ríkisborgararétt,
- vera svo á sig komnir andlega og líkamlega að þeir geti gegnt embættinu,
- vera lögráða og hafa aldrei misst forræði á búi sínu,
- hafa hvorki gerst sekir um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem lögreglustjórar verða almennt að njóta,
- hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður jafngilt.
Nú eru fleiri en einn aðstoðarlögreglustjóri við embætti og skal þá einn þeirra vera staðgengill lögreglustjóra. Þeir aðstoðarlögreglustjórar sem ekki eru staðgenglar lögreglustjóra skulu fullnægja skilyrðum a–e-liða 2. mgr. til skipunar í embætti, auk eftirtalinna skilyrða um menntun og starfsreynslu:
- hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi, eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður jafngilt, eða lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins svo og stjórnunarnámi eða öðru sambærilegu námi,
- hafa í þrjú ár gegnt lögfræðistörfum að aðalstarfi eða verið stjórnandi innan lögreglunnar, en leggja má saman starfstíma í þessum greinum.
Lögreglustjóri skipar yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna til fimm ára í senn og aðra lögreglumenn til starfa innan embættis síns með sama hætti til fimm ára í senn að fenginni umsögn hæfnisnefndar, sbr. f-lið 2. mgr. 5. gr. Hver sá sem er skipaður lögreglumaður skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Til að staðreyna hvort viðkomandi uppfyllir skilyrði e-liðar 2. mgr. er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um starfsstig innan lögreglunnar. Um öflun málaskrárupplýsinga, þar á meðal umfang upplýsingaöflunarinnar, fræðslu til umsækjenda og starfsmanna í aðdraganda uppflettingar og andmælarétt þeirra, skal nánar mælt fyrir í reglugerð.
8. gr. Heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Á eftir 28. gr. laganna kemur ný grein, 28. gr. a, ásamt fyrirsögn, sem orðast svo:Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
9. gr.
Í stað orðsins „ráðherra“ í 2. mgr. 37. gr. laganna kemur: ríkislögreglustjóri.10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 38. gr. laganna:
- Við b-lið 2. mgr. bætist: né hafa sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem lögreglumenn verða almennt að njóta.
- D-liður 2. mgr. orðast svo: samkvæmt kröfum sem ráðherra setur með reglugerð varðandi menntun, starfsþjálfun, tungumálakunnáttu, líkamlega færni, áskilnað um réttindi o.fl.
- Í stað orðanna „Sýslumannafélagi Íslands“ í 3. mgr. kemur: Lögreglustjórafélagi Íslands.
- Við 5. mgr. bætast tveir nýir málsliðir er orðast svo: Til að staðreyna hvort viðkomandi uppfyllir skilyrði b-liðar 2. mgr. er valnefnd heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Um öflun málaskrárupplýsinga, þar á meðal umfang upplýsingaöflunarinnar, fræðslu til umsækjenda og starfsmanna í aðdraganda uppflettingar og andmælarétt þeirra, skal nánar mælt fyrir í reglugerð.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. 3. og 4. gr. öðlast þó gildi 1. janúar 2015.12. gr. Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara breytast eftirfarandi ákvæði laga sem hér segir:
- Lög um opinberar fjársafnanir, nr. 5/1977: Í stað orðsins „lögreglustjóra“ tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr. og 2. og 3. mgr. 7. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
- Lög um verslunaratvinnu, nr. 28/1998, með síðari breytingum: Í stað orðsins „lögreglustjóra“ í 1. mgr. 19. gr. laganna og sama orðs hvarvetna annars staðar í greininni kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
-
Áfengislög, nr. 75/1998, með síðari breytingum:
- Í stað embættisheitisins „lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu“ í 1. mgr. 6. gr., 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 9. gr. og „lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu“ í 1. mgr. 25. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
- Í stað orðsins „lögreglustjóra“ í 3. mgr. 11. gr. og „lögreglustjóri“ í 2. mgr. 25. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
-
Lög
um
veitingastaði,
gististaði
og
skemmtanahald,
nr.
85/2007:
3.
mgr.
7.
gr.
laganna
orðast
svo:
Leyfisveitendur samkvæmt lögum þessum eru sýslumenn. -
Lög um almannavarnir, nr. 82/2008, með síðari breytingum: Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
- Í stað orðsins „sýslumanni“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: lögreglustjóra.
- Lokamálsliður 1. mgr. fellur brott.
- 3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Ráðherra ákveður hvaða lögreglustjóri skuli sitja í almannavarnanefnd ef fleiri en eitt lögregluumdæmi falla undir nefndina.
Ákvæði til bráðabirgða. I.
Ráðherra
skal
skipa
verkefnisstjórn
sem
hefur
með
höndum
undirbúning
þeirra
breytinga
sem
lög
þessi
mæla
fyrir
um
samkvæmt
nánari
ákvörðun
ráðherra.
Við
gildistöku
laga
þessara
og
fram
til
1.
janúar
2015
er
ráðherra
heimilt
að
undirbúa
stofnun
nýrra
lögregluembætta,
sbr.
2.–7.
tölul.
1.
mgr.
3.
gr.
laga
þessara,
m.a.
með
setningu
reglugerða
um
skipulag
allra
lögregluembætta
sem
kveðið
er
á
um
í
3.
gr.
Við
gerð
þeirra
reglugerða
þarf
ekki
að
gæta
að
ákvæðum
6.
gr.
gildandi
lögreglulaga,
sbr.
2.
gr.
laga
nr.
92/1989,
um
framkvæmdarvald
ríkisins
í
héraði.
Þegar
lög
þessi
öðlast
gildi
skal
sú
reglugerð
sem
hér
er
kveðið
á
um
eiga
stoð
í
3.
gr.
laga
þessara.
Þá
skal
ráðherra
einnig
heimilt
að
taka
ákvörðun
um
skipun
eða
flutning
sýslumanna
sem
fara
með
lögreglustjórn
samkvæmt
lögum
í
ný
lögregluembætti
samkvæmt
ákvæðum
laga
nr.
70/1996,
um
réttindi
og
skyldur
starfsmanna
ríkisins,
sem
hafi
heimild
til
þess
að
undirbúa
starfsemi
hinna
nýju
embætta,
þ.m.t.
starfsmannahald.
Við
ráðstöfun
starfa
eða
embætta
samkvæmt
þessu
ákvæði
þarf
ekki
að
gæta
að
skyldu
til
þess
að
auglýsa
laus
störf
til
umsóknar,
sbr.
7.
gr.
laga
nr.
70/1996.
Skulu
ný
embætti
taka
við
þeim
réttindum
og
skyldum
sem
einstakir
embættismenn
hafa
áunnið
sér,
þ.m.t.
samkvæmt
ákvæðum
laga
nr.
70/1996.
Skipun
lögreglustjóra
í
hin
nýju
embætti
tekur
formlega
gildi
1.
janúar
2015.
Þeir
aðilar
sem
fara
með
lögreglustjórn
skv.
3.
tölul.
1.
mgr.
6.
gr.
gildandi
lögreglulaga,
nr.
90/1996,
sbr.
ákvæði
laga
um
framkvæmdarvald
ríkisins
í
héraði,
nr.
92/1989,
og
kjósa
að
sækjast
eftir
nýju
embætti
skulu
njóta
forgangs
til
skipunar
í
hin
nýju
embætti
lögreglustjóra
skv.
3.
gr.
laga
þessara
en
embætti
skv.
3.
tölul.
1.
mgr.
6.
gr.
gildandi
lögreglulaga,
nr.
90/1996,
verða
lögð
niður.
Í
þeim
tilvikum
þar
sem
viðkomandi
hljóta
ekki
skipun
í
ný
embætti
lögreglustjóra
skal
leitast
við
að
bjóða
þeim
störf
hjá
embættum
lögreglu
eða
sýslumanna
eða
að
öðrum
kosti
störf
annars
staðar
á
umsýslusviði
þess
ráðuneytis
sem
fer
með
lögreglu-
og
löggæslumálefni.
Þeir
sem
skipaðir
eru
sýslumenn
og
fara
með
lögreglustjórn
skulu
eiga
þess
kost
að
lýsa
því
yfir
að
þeir
muni
ekki
sækjast
eftir
nýjum
embættum
lögreglustjóra
samkvæmt
lögum
þessum
og
hefja
þeir
þá
töku
biðlauna
samkvæmt
ákvæði
34.
gr.
laga
nr.
70/
1996
þegar
embætti
þeirra
hefur
verið
lagt
niður
samkvæmt
ákvæðum
þessara
laga
II.
Ný
embætti
lögreglustjóra
samkvæmt
lögum
þessum
taka
við
öllum
réttindum,
eignum
og
skyldum
þeirra
sýslumannsembætta
sem
hafa
farið
með
lögreglustjórn
samkvæmt
núgildandi
lögum,
þó
ekki
hvað
varðar
þjónustu
sýslumanna,
sbr.
lög
um
framkvæmdarvald
og
stjórnsýslu
ríkisins
í
héraði.
Eftir
að
skipulag
embætta
hefur
verið
ákveðið,
sbr.
ákvæði
til
bráðabirgða
I,
skulu
lögreglumenn
sem
skipaðir
eru
hjá
embættum
sem
taka
breytingum
hljóta
skipun
hjá
nýjum
lögregluembættum.
Þá
skal
bjóða
öllum
starfsmönnum
þeirra
embætta
sem
taka
breytingum
störf
ýmist
hjá
hinum
nýju
embættum
lögreglustjóra
eða
sýslumannsembættum,
sbr.
lög
um
framkvæmdarvald
og
stjórnsýslu
ríkisins
í
héraði.
Ef
ekki
er
unnt
að
bjóða
núverandi
starfsmanni
starf
hjá
nýjum
embættum
lögreglustjóra
eða
sýslumanna
skal
leitast
við
að
bjóða
þeim
starf
annars
staðar
á
umsýslusviði
þess
ráðuneytis
sem
fer
með
lögreglu-
og
löggæslumálefni.
Viðkomandi
embættismaður
eða
starfsmaður
kann
þó
að
þurfa
að
hlíta
breytingum
á
embætti
eða
starfi
eða
starfsstigi
vegna
skipulagsbreytinga
eða
sem
leiðir
af
stofnun
nýrra
lögregluembætta
og
sameiningu
sýslumannsembætta
í
hverju
umdæmi
og
með
hliðsjón
af
nýju
skipuriti.
Ný
embætti
skulu
taka
yfir
þau
réttindi
og
skyldur
sem
starfsmenn
hafa
áunnið
sér
en
um
réttindi
og
skyldur
lögreglu
eða
annarra
starfsmanna
vegna
skipulagsbreytinganna
fer
að
öðru
leyti
eftir
ákvæðum
laga
nr.
70/1996,
um
réttindi
og
skyldur
starfsmanna
ríkisins.
Ákvæði
7.
gr.
laga
nr.
70/1996,
um
skyldu
til
þess
að
auglýsa
laus
störf
til
umsóknar,
eiga
hins
vegar
ekki
við
um
ráðstöfun
starfa
eða
embætta
samkvæmt
þessu
ákvæði.
III.
Ráðherra skal í samráði við hlutaðeigandi aðila setja á laggirnar starfshóp til að endurskoða skipulag og starfsemi Lögregluskóla ríkisins og gera tillögu að framtíðarskipan lögreglumenntunar þannig að tryggt sé að menntun lögreglumanna svari ávallt kröfum samtímans um almannaöryggi og sé sambærileg stöðu menntunarmála lögreglunnar í Evrópu, einkum annars staðar á Norðurlöndum. Við tillögugerðina verði hugað að því að skipulag þessara mála sé skilvirkt og markvisst og tryggi sem besta nýtingu fjármuna sem ætlaðir eru til verkefnisins í þessu skyni. Starfshópurinn skal skila tillögum ásamt greinargerð til ráðherra ekki síðar en 1. ágúst 2014.
Gjört á Bessastöðum, 27. maí 2014.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
A deild - Útgáfud.: 30. maí 2014