Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. september 2021

Útgáfudagur

30. september 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1088/2021

22. september 2021

REGLUR

um beitingu útreikningsaðferða fyrir eiginfjárkröfur fjármálasamsteypa.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um eftirlitsskylda aðila á fjármálamarkaði sem falla undir lög nr. 61/2017, um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.

2. gr. Útreikningur á eiginfjárgrunni og kjarnagjaldþoli.

Eftirlitsskyldur aðili, í skilningi 1. gr., skal við útreikning á eiginfjárgrunni og lágmarksgjaldþoli samsteypunnar skv. IV. kafla laga nr. 61/2017, um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, fylgja ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 342/2014 frá 21. janúar 2014, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 342/2014 frá 21. janúar 2014, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/87/EB og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um beitingu útreikningsaðferðanna fyrir eiginfjárkröfur fjármálasamsteypa, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 45-53.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 32. gr. laga nr. 61/2017, um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, 84. gr. og a-lið 3. mgr. 17. gr. b. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2021

Tengd mál