Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

8. mars 2024

Útgáfudagur

22. mars 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 366/2024

8. mars 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 42, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1111 frá 6. júní 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin gerð:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1111 frá 6. júní 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 291 frá 27. október 2023. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 16. nóvember 2023, bls. 510-523.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr., laga um loftferðir nr. 80/2020 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 8. mars 2024.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. mars 2024

Tengd mál