Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
8. febrúar 2016
Útgáfudagur
23. febrúar 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 162/2016
8. febrúar 2016
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:
| a) | 3. mgr. orðast svo: | |
| Fjöldi nemenda á 1. námsári í hjúkrunarfræði takmarkast við töluna 120. Um framkvæmd fjöldatakmörkunar gilda reglur nr. 24/2015 um inntöku nýnema og inntökupróf í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. | ||
| b) | 4. mgr. fellur niður. |
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 8. febrúar 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 23. febrúar 2016