Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

24. ágúst 2012

Útgáfudagur

7. september 2012

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 748/2012

24. ágúst 2012

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, Brautarholt 7, Ásholtsreitur.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 24. ágúst 2012 breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, sem samþykkt var í borgarráði 7. júní 2012. Niðurstaða borgarstjórnar var auglýst 14. júní 2012.
Í breytingunni felst að skýringartexta við 5. mynd greinargerðar 1 er breytt fyrir þéttingarreit nr. 18, Ásholt, þ.e. Brautarholt 7. Heimilt verður að reisa 100 nemendaíbúðir á reitnum en aðeins 50 ef um almennar íbúðir er að ræða eins og í gildandi skipulagi. Jafnframt er á skýringarmynd sýnd lagfærð afmörkun þéttingarreita nr. 7, 17 og 18 og gefinn upp íbúðafjöldi á hverjum reit, sbr. AR7.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 24. ágúst 2012.

Stefán Thors.

Erna Hrönn Geirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 7. september 2012

Tengd mál