Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarrn
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ársreikningar, Staðlar
Undirritunardagur
23. október 2017
Útgáfudagur
6. nóvember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 931/2017
23. október 2017
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1905 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 15.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2017, frá 22. september 2017, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1905 frá 22. september 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 15.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2016/1905 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 686.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2017.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Harpa Theodórsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 6. nóvember 2017