Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármálaráðuneytið (2001-2012)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ríkisstofnanir, Opinber innkaup - framkvæmdir
Undirritunardagur
31. maí 2011
Útgáfudagur
31. maí 2011
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 56/2011
31. maí 2011
LÖG
um breytingu á lögum nr. 84/2007, um opinber innkaup.
HANDHAFAR
VALDS
FORSETA
ÍSLANDS
samkvæmt
8.
gr.
stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra,
forseti
Alþingis
og
forseti
Hæstaréttar,
gjöra
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
vér
staðfest
þau
með
samþykki
voru:
1. gr.
Í stað orðanna „1. mgr.“ í 3. mgr. 7. gr. laganna kemur: 2. mgr.
2. gr.
Við lögin bætist ný grein, 18. gr. a, sem orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Innkaup í öðru ríki Evrópska efnahagssvæðisins.
Fjármálaráðherra getur heimilað miðlægri innkaupastofnun að bjóða út innkaup, sem falla undir lög þessi, í öðru ríki Evrópska efnahagssvæðisins, hvort sem er í samstarfi við erlenda kaupendur, samtök þeirra eða fulltrúa, og/eða miðlægar innkaupastofnanir eða sér. Heimildin skal veitt fyrir hvert útboð fyrir sig að undangenginni rökstuddri beiðni stofnunarinnar. Heimildin skal því aðeins veitt að fyrir liggi að reglur Evrópska efnahagssvæðisins um opinber innkaup hafi verið leiddar í lög í viðkomandi ríki og ástæða sé til að ætla að innkaup í ríkinu muni þjóna hagkvæmni eða virkri samkeppni og öðrum lögmætum sjónarmiðum við opinber innkaup. Um innkaup sem fram fara á grundvelli heimildar sem veitt er samkvæmt þessari grein gilda reglur viðkomandi ríkis, þar á meðal um kærur, gildi innkaupsákvarðana og skaðabætur. Í rökstuðningi fyrir beiðni innkaupastofnunar skal liggja fyrir sérstakt samkeppnismat. Við móttöku beiðni innkaupastofnunar skal fjármálaráðuneyti leita eftir staðfestingu Samkeppniseftirlitsins á samkeppnismati innkaupastofnunar. Staðfesti Samkeppniseftirlitið ekki samkeppnismat innkaupastofnunar fara innkaup ekki fram samkvæmt ákvæði þessu.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Lög þessi skulu endurskoðuð innan fimm ára frá gildistöku þeirra.
Gjört í Reykjavík, 31. maí 2011.
| Jóhanna Sigurðardóttir. |
Ásta
R.
Jóhannesdóttir. (L. S.) |
Ingibjörg Benediktsdóttir. |
Steingrímur J. Sigfússon.
A deild - Útgáfud.: 31. maí 2011