Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjanesbær
Undirritunardagur
5. febrúar 2026
Útgáfudagur
19. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 162/2026
5. febrúar 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna íbúðarbyggðar og opins svæðis í Dalshverfi.
Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2026 breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 4. febrúar 2025.
Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar (ÍB9) um 5 ha og heildarfjöldi íbúða eykst úr 1.019 í 1.400 íbúðir. Með breytingunni er jafnframt leiðréttur upphaflegur heildarfjöldi íbúða, sem átti að vera 1.370 og gert ráð fyrir fjölgun um 30 íbúðir í Dalshverfi. Opið svæði (OP18) minnkar samsvarandi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 5. febrúar 2026.
f.h. forstjóra,
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 19. febrúar 2026