Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akraneskaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Akranes, Mannvirki

Undirritunardagur

24. september 2024

Útgáfudagur

18. nóvember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1280/2024

24. september 2024

GJALDSKRÁ

Akraneskaupstaðar fyrir skipulags- og byggingarmál og tengd þjónustugjöld.

1. gr. Gjöld.

Fyrir útgáfu leyfa og vottorða, úttektir, yfirferð gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Akraneskaupstaður veitir vegna byggingar- og leyfisskyldra framkvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir Akraneskaupstaður í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr. Byggingarleyfis- og stöðuleyfisgjöld.

Fyrir neðangreindar úttektir og með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 skal innheimta gjöld sem hér segir:

2.1. Byggingarleyfisgjald.
2.1.1 Íbúðarhúsnæði, gjald pr. m² 720 kr.
2.1.2 Annað húsnæði s.s. sólstofur, garðhús og gripahús, pr. m² 500 kr.
2.1.3 Stofnanir og atvinnuhúsnæði, pr. m² 400 kr.
2.1.4 Niðurrif 50.000 kr.
2.1.5 Breytingar á innra skipulagi, minni háttar 20.000 kr.
2.1.6 Breytingar á innra skipulagi, meiri háttar 40.000 kr.
2.2. Gjöld vegna stöðuleyfa.
2.2.1 Fyrir gáma, báta, skúra og dúkskemmur, veitt til eins árs 50.000 kr.
2.2.2 Fyrir torgsöluhús, söluvagna, -skúra og samkomutjöld, fyrir 0-3 mánuði 50.000 kr.
2.2.3 Fyrir torgsöluhús, söluvagna, -skúra og samkomutjöld, 1-4 dagar 20.000 kr.
2.2.4 Fyrir auglýsingaskilti, veitt til eins árs 50.000 kr.
2.2.5 Fyrir sumarhús í smíðum ætluð til flutnings, veitt til eins árs 50.000 kr.

Varðandi stöðuleyfi þá vísast í gr. 2.6.1. Umsókn um stöðuleyfi og 2.6.2. Heimild leyfisveitanda til að fjarlægja lausafjármuni, í byggingarreglugerð nr. 160/2010.

Innifalið í ofangreindum gjöldum er ein yfirferð aðal- og séruppdrátta, fokheldisvottorð og vottorð vegna öryggis- og lokaúttektar, eitt af hverri tegund. Heimild er til að innheimta kostnað vegna yfirferðar séruppdrátta þegar um er að ræða stærri byggingar eða flókin mannvirki.

Kostnaður vegna útsetningar á greftri/mannvirki og lóð, úttekta, förgunar á jarðvegi auk uppgraftrar og fyllingar vegna gatnagerðar er innheimtur sérstaklega.

3. gr. Gjöld fyrir skipulagsvinnu.

Vegna grenndarkynninga skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum skv. 36. og 38. gr. sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir:

3.1. Aðalskipulagsbreytingar.
3.1.1 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 36. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 200.000 kr.
3.1.2 Umsýslu- og auglýsingakostnaður 230.000 kr.
3.1.3 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 36. gr. 120.000 kr.
3.1.4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður 120.000 kr.
3.2. Deiliskipulagsbreytingar.
3.2.1 Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. 250.000 kr.
3.2.2 Breyting á deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 43. gr. 200.000 kr.
3.2.3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður,
sbr. 2. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 43. gr. 230.000 kr.
3.2.4 Breyting á deiliskipulagi sbr. 2. mgr. 43. gr. 100.000 kr.
3.2.5 Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. 100.000 kr.
3.2.6 Breyting á deiliskipulagi, sbr. 3. mgr. 44. gr. 100.000 kr.
3.3 Framkvæmdaleyfi.
3.3.1 Framkvæmdir skv. 13. gr. skipulagslaga 90.000 kr.
3.3.2 Framkvæmdir skv. 13. gr. skipulagslaga sem falla undir flokk C
í lögum um mat á umhverfisáhrifum 120.000 kr.
3.3.3 Framkvæmdir skv. 14. gr. skipulagslaga 150.000 kr.
3.3.4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður 50.000 kr.
3.3.5 Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í leyfisgjaldi 20.000 kr.
3.4 Afnotaleyfi.
3.4.1 Afnotaleyfi vegna bæjarlands, 1-6 dagar 20.000 kr.
3.4.2 Afnotaleyfi vegna bæjarlands, umfram 6 daga 50.000 kr.
3.4.3 Viðbótardagsleiga vegna daga umfram umsaminn tíma 4.000 kr.
3.4.4 Viðbótardagsleiga með 50% hækkun 6.000 kr.

Varðandi afnotaleyfi vísast í reglur fyrir tímabundin afnot af bæjarlandi.

4. gr. Gjöld vegna jarðefna.

4.1. Jarðefni.
4.1.1 Losunargjald, almennt, hvert skipti 8.500 kr.
4.1.2 Losunargjald, minni ökutæki, hvert skipti 5.500 kr.
4.1.3 Afgreiðslugjald aðgangslykils 8.000 kr.
4.1.4 Uppgröfur/fylling í lóð pr. m³ 4.000 kr.

Losunargjald á við losun á móttökusvæði jarðefna í Grjótkelduflóa. Minni ökutæki hafa skráða flutningsgetu undir 12 tonnum.

Uppgröftur/fylling í lóð getur komið til vegna vinnu við gatnagerð til þess að koma í veg fyrir hrun jarðvegs vegna vinnu í lóð. Einnig getur þetta verið vegna stígagerðar, vinnu við gangstéttir o.þ.h.

5. gr. Úttektargjöld.

5.1 Úttektargjöld.
5.1.1 Úttekt vegna byggingarstjóraskipta 30.000 kr.
5.1.2 Einbýlishús 220.000 kr.
5.1.3 Parhús, tvíbýlishús, pr. íbúð 180.000 kr.
5.1.4 Raðhús, pr. íbúð 150.000 kr.
5.1.5 Fjölbýlishús, pr. byggingaráfanga 400.000 kr.
5.1.6 Fjölbýlishús, viðbót pr. íbúð 20.000 kr.
5.1.7 Atvinnuhúsnæði – stofnanir 290.000 kr.
5.1.8 Minni byggingar, gripahús o.þ.h. 55.000 kr.
5.1.9 Aukaúttekt – stöðu-, áfanga-, öryggis-, lokaúttekt (pr. úttekt) 30.000 kr.
5.1.10 Úttekt vegna leiguhúsnæðis – íbúðarhúsnæði 30.000 kr.
5.1.11 Úttekt vegna leiguhúsnæðis – atvinnuhúsnæði 45.000 kr.
5.1.12 Úttekt vegna rekstrarleyfa 30.000 kr.
5.1.13 Gjald fyrir hvert útkall, ef verkið er ekki úttektarhæft 25.000 kr.
5.2 Gjöld vegna mælinga
5.2.1 Útsetningar fyrir greftri, mannvirki og lóð (3 mælingar) 250.000 kr.
5.2.2 Útsetning lóðamarka (ein mæling) 70.000 kr.

Innifalið í liðum 5.1.2 - 5.1.7 er ein fokheldis-, áfanga-, öryggis- og lokaúttekt.

6. gr. Gjöld fyrir þjónustu, afgreiðslu og vottorð.

6.1 Gjöld fyrir þjónustu og vottorð.
6.1.1 Afgreiðslugjald (fast gjald) 25.000 kr.
6.1.2 Auka gjald fyrir hverja umfjöllun umfram tvær 15.000 kr.
6.1.3 Endurnýjuð byggingarheimild/leyfi – gögn óbreytt 60.000 kr.
6.1.4 Breytingar á uppdráttum og lóðar- og mæliblöðum 100.000 kr.
6.1.5 Vottorð vegna fokheldis-, stöðu-, öryggis- og lokaúttektar 50.000 kr.
6.1.6 Gjald vegna stofnunar landeigna eða fasteigna (pr. lóð/eign) 36.000 kr.
6.1.7 Samrunaskjalagerð 30.000 kr.
6.1.8 Nafnabreyting, lands eða lóðar 20.000 kr.
6.1.9 Tímagjald starfsmanns á skipulags- og umhverfissviði 20.000 kr.
6.1.10 Lóðarleigusamningar 75.000 kr.
6.1.11 Umsýslugjald vegna lóðarúthlutunar (1/4 af umsóknargjaldi) 50.000 kr.
6.2 Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga.
6.2.1 Eignaskiptayfirlýsingar 2-5 eignir 42.000 kr.
6.2.2 6-15 eignir 56.000 kr.
6.2.3 16-50 eignir 70.000 kr.
6.2.4 51 eign og fleiri 85.000 kr.
6.2.5 Aukagjald fyrir hverja yfirferð eignaskiptayfirlýsingar umfram tvær 12.000 kr.

7. gr. Bílastæðagjald.

7.1 Bílastæðagjald skv. 19. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.1.1 Bílastæðagjald 600.000 kr.

8. gr. Gjöld vegna yfirferða uppdrátta.

8.1. Yfirferð aðal- og séruppdrátta (burðarþols-, lagna- og séruppdrátta aðalhönnuða).
8.1.1 Einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishús, allt að 6 íbúðir 100.000 kr.
8.1.2 Fjölbýlishús, 7-19 íbúðir 120.000 kr.
8.1.3 Fjölbýlishús, 20 íbúðir og fleiri 140.000 kr.
8.1.4 Frístundahús á einni hæð 100.000 kr.
8.1.5 Annað húsnæði, þ.m.t. atvinnu- og gripahús 140.000 kr.
8.1.6 Byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofur o.fl. 40.000 kr.
8.1.7 Breyting á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis o.fl. 60.000 kr.
8.1.8 Breyting á innra skipulagi sérbýlis, klæðningu húss, svalaskýlis, lóð o.fl. 40.000 kr.
8.1.9 Aukagjald fyrir hverja umfjöllun umfram tvær 20.000 kr.

9. gr. Trygging fyrir gjöldum.

Álögðum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari fylgir lögveð í fasteign þeirri sem gjöldin eru lögð á og ganga ásamt vöxtum og kostnaði fyrir öllum veðkröfum sem á eigninni hvíla og tekur það einnig til vátryggingarfjár hennar, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

10. gr. Gildistaka og verðbreytingar.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2023, 112,7 stig, og taka breytingum mánaðarlega í samræmi við breytingar á umræddri vísitölu.

Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslögum nr. 123/2010 og öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 887/2024.

Samþykkt í skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar 3. júní 2024.

Samþykkt í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, 24. september 2024.

Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2024

Tengd mál