Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
7. júní 2023
Útgáfudagur
21. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 644/2023
7. júní 2023
REGLUGERÐ
um innihald og framsetningu upplýsinga sem fyrirtæki eiga að birta samkvæmt tilskipun 2013/34/ESB varðandi umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi og tilgreinir aðferðafræðina við að fara að þessari birtingarskyldu.
1. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2178 frá 6. júlí 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/852 með því að tilgreina innihald og framsetningu upplýsinga sem fyrirtæki eiga að birta skv. 19. gr. a eða 29. gr. a í tilskipun 2013/34/ESB varðandi umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi og tilgreina aðferðafræðina við að fara að þessari birtingarskyldu. Reglugerðin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2022 frá 8. júlí 2022, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 45 frá 15. júní 2023, bls. 10.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 25/2023, um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. júní 2023.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Benedikt Hallgrímsson.
B deild - Útgáfud.: 21. júní 2023