Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur
Undirritunardagur
21. nóvember 2024
Útgáfudagur
26. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1329/2024
21. nóvember 2024
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 817/2024, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025.
1. gr.
Í töflu í 2. gr. reglugerðarinnar er gerð breyting, svohljóðandi:
| Tegund | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar |
| 8. Djúpkarfi | 3.800 | 201 | 3.599 |
2. gr.
2. tl., Rækja á grunnslóð, í töflu í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
| Tegund/svæði | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar |
| 2. Rækja á grunnslóð | 169 | 9 | 160 |
| Arnarfjörður | 169 | 9 | 160 |
| Ísafjarðardjúp | 0 | 0 | 0 |
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu „hlýra“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: grásleppu.
- Við bætist nýr málsliður í 2. mgr. sem verður 2. málsl., svohljóðandi: Krókaaflamarksbátum er heimilt að stunda hrognkelsaveiðar í net.
- 2. málsl. 2. mgr. verður 3. málsl.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 26. nóvember 2024