Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

2. október 2015

Útgáfudagur

19. október 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 922/2015

2. október 2015

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 140/2014 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 1. mgr. III. liðar 17. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Nemandi sem er í síðari hluta náms í læknisfræði að loknu BS-prófi eða hefur lokið kandídatsprófi í læknisfræði getur fengið allt að 15 einingar metnar í valnámskeiðum úr því námi inn í meistaranámið.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af læknadeild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 2. október 2015.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 19. október 2015

Tengd mál