Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið (2009-2012)
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi, Dómsmál
Undirritunardagur
3. júlí 2012
Útgáfudagur
3. júlí 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 72/2012
3. júlí 2012
LÖG
um breytingu á lögum um nauðungarsölu, lögum um aðför, lögum um meðferð einkamála, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. (auglýsing nauðungarsölu, mál til heimtu bóta, gjafsókn, vörslusviptingar, úthlutun úr þrotabúi).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
nauðungarsölu,
nr.
90/1991,
með
síðari
breytingum.
1.
gr.
2. gr.
Á eftir orðinu „dagblaði“ í 1. málsl. 1. mgr. 64. gr. laganna kemur: á vef sýslumanna.3. gr.
Í stað orðsins „þrír“ í 88. gr. laganna kemur: sex.4. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a.
(I.)
Fram
til
ársloka
2013
skal
frestur
til
að
höfða
mál
til
heimtu
bóta
skv.
88.
gr.
vera
tólf
mánuðir.
b.
(II.)
Sýslumaður
skal
gæta
þess
af
sjálfsdáðum
að
uppboðsandvirði
verði
ekki
ráðstafað
til
greiðslu
kröfu
ef
hún
er
umdeild
í
ljósi
hæstaréttardóma
sem
gengið
hafa
um
lögmæti
og
endurreikning
gengistryggðra
lána.
II. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
aðför,
nr.
90/1989,
með
síðari
breytingum.
5.
gr.
6. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Fram til ársloka 2013 skal frestur til að höfða mál til heimtu bóta skv. 98. gr. vera tólf mánuðir.
III. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum.
7. gr.
Í stað 1. mgr. 126. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Gjafsókn verður aðeins veitt ef málstaður umsækjanda gefur nægilegt tilefni til málshöfðunar eða málsvarnar og öðru hvoru eftirfarandi skilyrða er að auki fullnægt:
a. að fjárhag umsækjanda sé þannig háttað að kostnaður af gæslu hagsmuna hans í máli yrði honum fyrirsjáanlega ofviða, enda megi teljast eðlilegt að öðru leyti að gjafsókn sé kostuð af almannafé,
b. að úrlausn máls hafi verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjanda.
Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um skilyrði gjafsóknar, þ.m.t. hvenær nægilegt tilefni sé til veitingar gjafsóknar, þau atriði sem líta ber til við mat á fjárhagsstöðu umsækjanda og heimildir til takmörkunar á gjafsókn skv. 1. mgr. 127. gr.
IV. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
fjármálafyrirtæki,
nr.
161/2002,
með
síðari
breytingum.
8.
gr.
Þrátt fyrir 2. mgr. 22. gr. er fjármálafyrirtækjum og fjármálafyrirtækjum í slitameðferð ekki heimilt að yfirtaka eignir til að tryggja fullnustu kröfu með vörslusviptingu ef krafan er umdeild í ljósi hæstaréttardóma sem gengið hafa um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána. Dómari tekur afstöðu til þess hvort réttur fjármálafyrirtækis sé svo ótvíræður að heimila megi vörslusviptingu.
Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæði þessu, sbr. 110. gr.
Ákvæði þetta gildir til loka árs 2013.
V. KAFLI Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991,
með síðari breytingum.
9. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Skiptastjóri skal, við úthlutun skv. XXII. kafla, gæta þess af sjálfsdáðum að söluvirði eignar verði ekki ráðstafað til greiðslu kröfu ef hún er umdeild í ljósi hæstaréttardóma sem gengið hafa um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána.
10. gr. Gjört á Bessastöðum, 26. júní 2012.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó öðlast 7. gr. gildi 15. júlí 2012.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Katrín Jakobsdóttir.
A deild - Útgáfud.: 3. júlí 2012