Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Akureyri

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

29. febrúar 2024

Útgáfudagur

20. mars 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 343/2024

29. febrúar 2024

REGLUR

um breytingu á reglum um stjórnskipulag heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri, nr. 820/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „fimm deildir“ í 1. málsl. 6. gr. koma orðin: fjórar deildir.
  2. Orðin „framhaldsnámsdeild í heilbrigðisvísindum“ í 1. málsl. 6. gr. falla brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:

  1. Á eftir 4. málsl. 12. gr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Deild er heimilt að skipa sérstakar námsnefndir fyrir einstakar námsbrautir.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglnanna:

  1. 15. gr. fellur brott, ásamt fyrirsögn.

4. gr.

16. gr. reglnanna orðast svo:

Hjúkrunarfræðideild er fagleg grunneining sem stendur fyrir og ber ábyrgð á kennslu og rannsóknum á sviði hjúkrunarfræði og veitingu prófgráða við námslok. Auk starfsemi á sviði hjúkrunarfræði fer fram við hjúkrunarfræðideild þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum og fagnám fyrir starfandi sjúkraliða. Brautarstjórar bera faglega ábyrgð á þverfaglegu framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum og fagnámi starfandi sjúkraliða í umboði deildarfundar. Til viðbótar við námsnefnd í hjúkrunarfræði, sbr. 12. gr., eru skipaðar sérstakar námsnefndir fyrir þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum og fagnám fyrir starfandi sjúkraliða.

Deildarfundur fer með æðsta ákvörðunarvald í málefnum hjúkrunarfræðideildar, sbr. 7. gr. reglna þessara og skulu deildarfundir haldnir mánaðarlega að jafnaði. Auk þeirra sem tilgreindir eru í 7. gr. hafa stundakennarar, sem fara með umsjón námskeiða, setu- og atkvæðisrétt á deildarfundum og einnig akademískt starfsfólk deildarinnar sem ekki heyrir undir a-lið 7. gr. auk verkefnastjóra deildarinnar.

Deildarforseti leiðir starf deildarinnar í umboði deildarfundar og er ábyrgur gagnvart deildinni, starfsfólki hennar og fræðasviðinu, sbr. 9. gr. Deildarforseti stjórnar jafnframt námi í hjúkrunarfræði.

Við deildina starfar deildarráð, sbr. 8. gr. Í deildarráði situr deildarforseti eða staðgengill hans í fjarveru deildarforseta, formaður námsnefndar í hjúkrunarfræði, brautarstjóri fagnáms fyrir starfandi sjúkraliða, brautarstjóri þverfaglegs framhaldsnáms í heilbrigðisvísindum, einn fulltrúi fastráðinna kennara sem kosinn er á deildarfundi, verkefnastjórar klínísks náms og einn fulltrúi stúdenta, tilnefndur af aðildarfélagi Stúdentafélags Háskólans á Akureyri til eins árs í senn. Jafnframt situr fulltrúi sviðsskrifstofu fundi með tillögurétt en án atkvæðisréttar. Falli atkvæði fundar jafnt ræður atkvæði deildarforseta.

Hjúkrunarfræðideild veitir kennslu til eftirtalinna prófgráða:

BS-prófs í hjúkrunarfræði.
Viðbótardiplómu í hjúkrunarfræði.
MS-prófs í hjúkrunarfræði.
Fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða – grunndiplóma.
Viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun.
Viðbótardiplómu í heilbrigðisvísindum.
MS-prófs í heilbrigðisvísindum.

Auk þess býður Háskólinn á Akureyri upp á nám til doktorsgráðu í heilbrigðisvísindum.

Við skipulagningu náms í hjúkrunarfræðideild er tekið mið af lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008.

Jafnframt er tekið mið af því að hver nemandi geti fengið nám sitt metið til sérfræðiviðurkenningar, sjá meðal annars reglugerð nr. 512/2013 um menntun, réttindi og skyldur hjúkrunarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi, reglugerð nr. 467/2015 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi, reglugerð nr. 1127/2012 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraþjálfara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi og reglugerð nr. 1088/2012 um menntun, réttindi og skyldur félagsráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

Hjúkrunarfræðideild setur nánari reglur um námið og skulu þær koma fram í kennsluskrá.

5. gr.

Reglur þessar sem samþykktar voru í háskólaráði 29. febrúar 2024 eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri. Reglurnar öðlast gildi frá 1. júlí 2024.

Háskólanum á Akureyri, 29. febrúar 2024.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 20. mars 2024

Tengd mál