Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Gæludýr, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
4. febrúar 2026
Útgáfudagur
18. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 160/2026
4. febrúar 2026
SAMÞYKKT
um kattahald í Ísafjarðarbæ.
1. gr. Gildissvið.
Samþykkt þessi gildir um kattahald í Ísafjarðarbæ og sætir þeim takmörkunum sem fram koma í samþykkt þessari.
2. gr. Markmið.
Markmið samþykktar þessarar er að stuðla að því að eigendur og umráðamenn katta fari vel með þá, tryggi þeim góða vist, sjái til þess að þeir séu ekki á flækingi og að af þeim stafi hvorki ónæði né tjón. Markmið er einnig að stuðla að verndun fuglalífs.
3. gr. Stjórnsýsla.
Heilbrigðisnefnd Vestfjarða hefur eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd Ísafjarðarbæjar fer með framkvæmd samþykktar þessarar í umboði heilbrigðisnefndar, nema sérstaklega sé getið um eftirlit heilbrigðisnefndarinnar. Umhverfis- og eignasvið Ísafjarðarbæjar annast framkvæmd samþykktarinnar undir yfirumsjón umhverfis- og framkvæmdanefndar, en nefndin getur auk þess ákveðið að ráða sérstaka dýraeftirlitsmenn eða falið starfsmönnum sveitarfélagsins hlutverk eftirlitsaðila.
Dýraeftirlitsmenn geta leitað aðstoðar heilbrigðisnefndar Vestfjarða, Matvælastofnunar og lögregluyfirvalda, ef og þegar þörf krefur, t.d. ef gæludýr er að mati eftirlitsins hættulegt umhverfi sínu, vörsluaðili dýrsins tálmar starfi eftirlitsaðila samkvæmt samþykkt þessari eða þegar nauðsynlegt er vegna almannahagsmuna, dýravelferðar eða heilbrigðis- og öryggissjónarmiða, að leita atbeina lögreglu við að fjarlægja dýr.
4. gr. Dýravernd.
Eiganda og umráðamanni er skylt að sjá til þess að farið sé vel með ketti þeirra samkvæmt lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Ákvæði reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016 gilda um aðbúnað og umönnun katta.
5. gr. Kattahald í fjöleignarhúsum.
Um kattahald í fjöleignarhúsum fer samkvæmt ákvæðum laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
6. gr. Merking katta.
Alla ketti skal örmerkja innan 12 vikna aldurs skv. 11. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Ber viðkomandi eigandi eða umráðamaður allan kostnað af merkingu og skráningu kattarins, sem dýralæknir annast.
Kettir skulu bera hálsól með upplýsingum um nafn eiganda og símanúmer.
7. gr. Gelding.
Kattaeigendum ber að sjá til þess að högnar séu geltir hafi þeir náð 6 mánaða aldri og að læður séu gerðar ófrjóar eða hafðar á getnaðarvarnapillu.
8. gr. Ormahreinsun.
Í þeim tilgangi að fyrirbyggja sýkingar af völdum spóluorma í köttum, sbr. 42. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, er eiganda eða umráðamanni kattar skylt að láta ormahreinsa köttinn sé þess þörf. Ber viðkomandi eigandi eða umráðamaður allan kostnað af hreinsun kattarins.
Ef smit sjúkdóma eða sníkjudýra kemur upp skal umráðamaður án tafar leita meðferðar fyrir dýr og grípa til aðgerða til að hindra smitdreifingu.
9. gr. Ónæði og óþrif.
Eigendum og umráðamönnum katta ber, eftir því sem framast er unnt, að sjá svo um að kettir þeirra valdi ekki tjóni, hættu, óþægindum, óþrifum eða raski ró manna.
Kattareiganda ber að greiða allt það tjón sem köttur hans veldur mönnun, dýrum og munum, svo og greiðslu alls kostnaðar við að fjarlægja hann gerist þess þörf.
10. gr. Fuglalíf á varptíma.
Kattaeigendum og umráðamönnum ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma 1. maí til 31. ágúst, eftir því sem tök eru á, m.a. með því að hengja bjöllur á hálsólar katta og halda þeim innandyra að næturlagi, frá kl. 24.00 að nóttu til kl. 07.00 að morgni.
Bæjarstjórn er heimilt vegna fuglalífs að banna kattahald á ákveðnum svæðum sveitarfélagsins. Slíkt bann verður staðfest sem breyting á samþykkt þessari.
11. gr. Óheimilir staðir.
Ekki má hleypa köttum inn í húsrými, s.s. skóla, leikvelli, íþróttavelli eða þá staði, sem um getur í 43. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, nema í tilvikum þar sem heilbrigðisnefnd hefur heimilað. Heimilt er að fara með ketti inn í íþróttamannvirki, heilbrigðisstofnanir eða snyrtistofur þegar og þar sem starfsemin er sérstaklega ætluð dýrum. Einnig eru kettir heimilaðir í strætó og á þeim veitingastöðum sem við á, sbr. ákvæði sömu greinar.
Óheimilt er að hleypa köttum inn í húsnæði matvælafyrirtækja, sbr. reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, nr. 103/2010, og reglugerð um náttúrulegt ölkelduvatn og átappað lindarvatn, nr. 405/2004.
12. gr. Takmörkun réttar.
Heilbrigðisnefnd er heimilt að takmarka rétt umráðamanns kattar til að halda kött ef fyrir liggja skriflegar kvartanir um ónæði eða hættu sem kötturinn sannanlega veldur umhverfi sínu og eiganda eða umráðamanni tekst ekki að fyrirbyggja.
13. gr. Handsömun katta.
Um handsömun katta fer skv. 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og 12. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Ef köttur sleppur eða hverfur frá heimili sínu skal eigandi eða umráðamaður gera viðeigandi ráðstafanir til að finna köttinn. Eftirlitsmanni með dýrahaldi er heimilt að handsama kött sem undan er kvartað og/eða ekki er réttilega merktur skv. 6. gr.
Sé köttur merktur skal gera viðeigandi ráðstafanir til að hafa uppi á umráðamanni hans. Hafi kattarins ekki verið vitjað innan viku frá tilkynningu um handsömun kattarins eða ef umráðamaður finnst ekki innan tveggja vikna er heimilt að ráðstafa kettinum til nýs ábyrgs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta. Kostnaður vegna handsömunar og vörslu á ketti skal greiddur af eiganda eða umráðamanni samkvæmt gjaldskrá.
14. gr. Gjaldskrá.
Heimilt er að innheimta handsömunar- og vistunargjöld í samræmi við gjaldskrá sem bæjarstjórn setur í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjaldskráin skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.
15. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um þvingunarúrræði og viðurlög við brotum gegn ákvæðum samþykktar þessarar fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
Um kæruheimildir fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
16. gr. Gildistaka.
Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. 2. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast þegar gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt um kattahald í Ísafjarðarbæ, nr. 907/2013.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 4. febrúar 2026.
F. h. r.
Kjartan Ingvarsson.
Trausti Ágúst Hermannsson.
B deild — Útgáfudagur: 18. febrúar 2026