Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sjúkratryggingar Íslands
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar, Aldraðir
Undirritunardagur
7. febrúar 2024
Útgáfudagur
22. febrúar 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 213/2024
7. febrúar 2024
AUGLÝSING
um (1.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands fyrir dagdvöl aldraðra á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum 2024 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands, nr. 117/2024.
1. gr.
Ákvæði 13. og 14. málsliðar A-liðar 4. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar breytast þannig að: „Almenn sérhæfð dagdvöl Múlabær, dagdvöl Reykjavík“ og „Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Múlabær, dagdvöl Reykjavík“ falla brott. Samhliða fellur brott 7. mgr. 5. gr. ásamt fyrirsögn.
2. gr. Gildistaka.
Auglýsing þessi sem er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra, tekur gildi 1. febrúar 2024 og er gildistími sá sami og kveðið er á um í 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016, með síðari breytingum.
Sjúkratryggingum Íslands, 7. febrúar 2024.
Sigurður H. Helgason.
Júlíana H. Aspelund.
B deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2024