Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

2. júlí 2025

Útgáfudagur

16. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 805/2025

2. júlí 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins, nr. 270/2024.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1403 frá 12. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 með því að mæla fyrir um skilyrði og verklagsreglur fyrir faggildingu Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins á hæfum aðilum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 81-84.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 2. júlí 2025.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. júlí 2025

Tengd mál