Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

26. júní 2026

Útgáfudagur

10. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 795/2026

26. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Kvosin – Austurstræti 8-14 – USK24070045.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 7. maí 2026, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti. Í breytingunni felst m.a. breytt notkun þannig að leyfðar verði íbúðir á efri hæðum þar sem áður voru skrifstofur, ásamt því að áfram verði heimilt að hafa skrifstofur og/eða veitingarými á efri hæðum eftir atvikum. Einnig verði heimilt að breyta útliti húsanna og setja svalir svo húsnæði uppfylli skilyrði fyrir íbúðir og skyggni yfir útisvæði veitingastaða að Austurvelli. Heimilt verði að breyta núverandi kvistum ásamt því að bæta við kvistum á húsin nr. 12 og 12A. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skarfabakki, Klettasvæði – Skarfagarðar 6-8 – USK25110089.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 19. maí 2026, breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Skarfagarða. Í breytingunni felst að lóðarmörk Skarfagarða 6 færast 12 m frá hafnarbakka og verða eftir breytingu í 30 m fjarlægð frá honum, byggingarreitur minnkar í samræmi við það. Ný lóð, Skarfagarðar 8, er stofnuð á nýrri landfyllingu fyrir farþegamiðstöð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Fossvogshverfi, svæði 1 – Bjarmaland 16 – USK26020463.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 27. maí 2026, breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, svæðis 1, vegna lóðarinnar nr. 16 við Bjarmaland. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit hússins til austurs til að koma fyrir viðbyggingu, stigahúsi, og til vesturs vegna þegar byggðrar viðbyggingar. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Túnin – Miðtún 11 – USK25110361.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 16. júní 2026, breytingu á deiliskipulagi Túnanna vegna lóðarinnar nr. 11 við Miðtún. Í breytingunni felst breyting á stærð bílgeymslu og breyting á skilmálatöflu, bílgeymsla verður vinnustofa, og byggingarreitur fyrir aðalhúsið stækkar til vesturs. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 26. júní 2026.

Brynjar Þór Jónasson.

B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026

Tengd mál