Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
30. október 2016
Útgáfudagur
18. nóvember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 984/2016
30. október 2016
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:
| 3.16 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1671 frá 15. september 2016 um breyting á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.16. | |
| 4.19 | Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1661 frá 15. september 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.19. | |
| 7.5 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1071 frá 1. júlí 2016 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.5. |
Töluliður 5.3 í 2. gr. hljóði svo:
| 5.3 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/982 frá 17. júní 2016 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol, sbr. fylgiskjal 5.3. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 30. október 2016.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2016