Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Forseti Íslands, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
7. maí 2026
Útgáfudagur
15. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 41/2026
7. maí 2026
LÖG
um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands (forsetaritari, handhafalaun o.fl.).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990.
1. gr.
5. gr. laganna orðast svo:
Forsetaritari stýrir skrifstofu embættisins, ræður annað starfslið, er ábyrgur fyrir rekstri embættisins og skipuleggur starfsemi þess. Forseti skipar forsetaritara til fimm ára í senn.
Laun forsetaritara nema 1.800.037 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 473.962 kr. á mánuði. Launin skulu taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum aflar Hagstofan skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gerir jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem hún telur þörf á. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.
2. gr.
6. gr. laganna orðast svo:
Heimilt er að ráða til starfa aðstoðarmann forseta sem gegni störfum svo lengi sem forseti ákveður en þó ekki lengur en forseti sjálfur. Ákvæði um auglýsingaskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eiga ekki við um ráðningu aðstoðarmanns. Forsetaritari ræður aðstoðarmann í samráði við forseta og tilkynnir honum um starfslok þegar við á.
Meginhlutverk aðstoðarmanns forseta er að vinna að áherslumálum forseta undir yfirstjórn forseta og í samvinnu við forsetaritara. Forsetaritari setur aðstoðarmanni erindisbréf í samráði við forseta þar sem m.a. skal kveðið nánar á um starfssvið og starfsskyldur.
Laun aðstoðarmanns forseta á mánuði nema sem svarar til sjötíu og fimm hundraðshluta af launum forsetaritara og hlutfall greiðslu fyrir yfirvinnu og álag þar af er hið sama og hjá forsetaritara.
Aðstoðarmaður forseta á rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi. Hafi aðstoðarmaður áður verið ríkisstarfsmaður á hann í tvö ár frá ráðningu rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins. Þiggi fyrrverandi aðstoðarmaður forseta laun vegna annarra starfa á því tímabili sem hann á rétt á biðlaunum skerðast biðlaunin sem þeim launum nemur.
3. gr.
7. gr. laganna orðast svo:
Þóknun handhafa forsetavalds, sbr. 8. gr. stjórnarskrárinnar, nemur 300.000 kr. samanlagt á ári og skiptist jafnt þeirra á milli.
4. gr.
Á eftir 7. gr. laganna kemur ný grein, 7. gr. a, svohljóðandi:
Um öryggismál embættisins fer samkvæmt reglum sem forsætisráðherra setur, í samráði við forsetaritara, ráðherra sem fer með málefni lögreglu og löggæslu og önnur hlutaðeigandi stjórnvöld, sbr. 3. mgr. 27. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða I og II í lögunum falla brott.
6. gr.
Heiti laganna verður: Lög um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands.
II. KAFLIBreyting á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
7. gr.
Við 27. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Forsætisráðherra setur reglur um öryggi æðstu stjórnar ríkisins, að höfðu samráði við ráðherra sem fer með málefni lögreglu og löggæslu og önnur hlutaðeigandi stjórnvöld.
Forsætisráðherra er heimilt að setja reglur um staðgöngu í fjarveru ráðherra og undirritanir á vettvangi Stjórnarráðs og ríkisráðs. Takmarka má heimild til rafrænna undirritana, svo sem við ákveðnar tegundir skjala eða aðstæður við undirritun.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 7. maí 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026