Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Almannatryggingar, Lífeyrissjóðir

Undirritunardagur

18. mars 2019

Útgáfudagur

1. apríl 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 306/2019

18. mars 2019

REGLUGERÐ

um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (VI).

1. gr. Gildistaka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/492.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/492 frá 21. mars 2017 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2018 frá 5. desember 2018 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum og bókun 1 við EES-samninginn.

Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2018.

2. gr. Efni.

Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með.

Í reglugerð heilbrigðisráðherra verður kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og heilbrigðisráðherra fer með.

Í reglugerð félags- og barnamálaráðherra verður kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og félags- og barnamálaráðherra fer með.

3. gr. Tilvísun.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2018 frá 5. desember 2018 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 28. febrúar 2019, bls. 1, og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/492 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 85 frá 20. desember 2018, bls. 110. Gerðirnar eru einnig birtar sem fylgiskjöl með reglugerð félags- og barnamálaráðherra.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. mars 2019.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. apríl 2019

Tengd mál