Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Dómsmál, Erfðamál
Undirritunardagur
17. nóvember 2020
Útgáfudagur
18. nóvember 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 121/2020
17. nóvember 2020
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru (framlenging bráðabirgðaheimilda).
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 208. gr. laganna:
- Í stað dagsetningarinnar „1. október 2020“ í 1. og 2. mgr. kemur: 31. desember 2021.
- Í stað orðanna „aðalmeðferð og önnur þinghöld en þingfesting almennra einkamála“ í 1. mgr. kemur: þingfesting, aðalmeðferð og önnur þinghöld.
II. KAFLI Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða X í lögunum:
- Í stað dagsetningarinnar „1. október 2020“ í 1., 2. og 3. mgr. kemur: 31. desember 2021.
- Á undan orðinu „aðalmeðferð“ í 2. mgr. kemur: þingfesting.
III. KAFLI Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991.
3. gr.
Í stað dagsetningarinnar „1. október 2020“ í 1. og 2. mgr. 158. gr. laganna kemur: 31. desember 2021.
IV. KAFLI Breyting á erfðalögum, nr. 8/1962.
4. gr.
Í stað dagsetningarinnar „1. október 2020“ í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur: 31. desember 2021.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 17. nóvember 2020.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
A deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2020