Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
29. janúar 2025
Útgáfudagur
12. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 159/2025
29. janúar 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
| 3.75 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/3182 frá 16. desember 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.75. | |
| 4.83 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/3189 frá 16. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.83. | |
| 7.38 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/3187 frá 16. desember 2024 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.38. | |
| 8.30 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/3192 frá 16. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.30. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2025.
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
utanríkisráðherra.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2025