Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

29. janúar 2026

Útgáfudagur

12. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 135/2026

29. janúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.

Breyting á deiliskipulagi fyrir Dalbæ og Karlsrauðatorg.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 16. september 2025 breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði við Dalbæ og Karlsrauðatorg skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur m.a. í sér eftirfarandi:

Lóð dvalarheimilisins Dalbæjar er stækkuð í 8.000 m² og þar verður hámarks leyfilegt byggingarmagn 5.000 m² á tveimur hæðum.

Á lóð nr. 17 við Karlsrauðatorg er heimilt að reisa 4-6 íbúða hús á einni til tveimur hæðum fyrir íbúa 60 ára og eldri.

Leikskólalóð við Karlsrauðatorg 23 er stækkuð lítillega til norðausturs

 Gert er ráð fyrir lóð fyrir parhús á einni hæð við Kirkjuveg 25-27.

Gert er ráð fyrir 20 m² lóð fyrir spennistöð ofan við Karlsrauðatorg 25.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 41.-43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Dalvík, 29. janúar 2026.

María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 12. febrúar 2026

Tengd mál