Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjanesbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

23. nóvember 2018

Útgáfudagur

10. desember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1117/2018

23. nóvember 2018

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Reykjanesbæ.

Valhallarbraut 890 og 891, deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 18. september 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Valhallarbraut 890 og 891.
Valhallarbraut 890, lóðamörkum er breytt og lóð minnkuð. Innakstur á lóð færður til austurs og er sameiginlegur með lóð nr. 891. Valhallarbraut 891, lóð er stækkuð og lóðamörkum breytt. Niðurrifsheimildir fyrir báðar lóðir eru felldar niður, byggingarreitur nýbygginga skilgreindur. Nýtingarhlutfalli er breytt og hámarksmænishæð skilgreind. Legu Valhallarbrautar er breytt.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Duusgata 10, deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 20. nóvember 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Duusgötu 10.
Breytingin felur í sér að heimilt er að vera með gististarfsemi fyrir allt að 14 herbergi, leyfilegt byggingarmagn verði allt að 800 m². Kvistir á rishæð verði leyfilegir.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Reykjanesbæ, 23. nóvember 2018.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 10. desember 2018

Tengd mál