Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Landbúnaður

Undirritunardagur

24. júní 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 782/2026

24. júní 2026

REGLUGERÐ

um (3.) breytingu á reglugerð nr. 350/2024 um stuðning við kornrækt.

1. gr.

Á eftir orðunum „tilheyrandi tækjabúnaði“ í 2. málsl. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: auk þreskivéla sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar.

2. gr.

Á eftir „flutningstækjum fyrir korn“ í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: auk þreskivéla sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar. Hver umsækjandi getur aðeins einu sinni hlotið styrk til kaupa á þreskivél.

3. gr.

Á eftir orðunum „fjárfestingu í flutningstækjum“ í e-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: og þreskivélum sem ætlaðar eru til að uppskera þroskað korn frá axi sem ætlað er til þurrkunar.

4. gr.

Á eftir orðunum „útgefið af fagaðila“ í c-lið 8. gr. reglugerðarinnar kemur: sem ráðuneytið viðurkennir.

5. gr.

Á eftir orðunum „vottorði frá fagaðila“ í 1. málsl. 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: sem ráðuneytið viðurkennir.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 19. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, og 81. gr. búvörulaga, nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 24. júní 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál