Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. desember 2021

Útgáfudagur

28. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1592/2021

22. desember 2021

REGLUR

um takmörkun á stöðutöku viðskiptabanka og sparisjóða.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um viðskiptabanka og sparisjóði samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sem fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að teljist kerfislega mikilvægir, sbr. d-lið 13. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019.

2. gr. Hlutfall eiginfjárþarfar vegna beinnar og óbeinnar stöðutöku.

Eiginfjárþörf vegna beinnar og óbeinnar stöðutöku, sem hlutfall af eiginfjárgrunni, skal reiknuð á eftirfarandi hátt:

Með eiginfjárþörf er átt við eiginfjárþörf undir stoð 1 sem reiknuð er út í samræmi við bálka II og IV í III. hluta reglugerðar um varfærniskröfur fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017 og eiginfjárþörf undir stoð 2 sem reiknuð er út í samræmi við viðmið Fjármálaeftirlitsins sem birt eru á grundvelli 116. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með eftirfarandi hætti:

  1. Eiginfjárþörf vegna hlutabréfa í veltubók er reiknuð út í samræmi við kafla 5.2 og 5.3 í viðauka 2 í viðmiðum Fjármálaeftirlitsins um mat á eiginfjárþörf undir stoð 2 vegna markaðsáhættu (e. Annex 2: Supervisory Benchmarks for the Setting of Pillar 2 Own Funds Requirements for Market Risk).
  2. Eiginfjárþörf vegna hlutabréfa í fjárfestingabók er reiknuð út í samræmi við kafla 6.2 í viðauka 2 í viðmiðum Fjármálaeftirlitsins um mat á eiginfjárþörf undir stoð 2 vegna markaðsáhættu (e. Annex 2: Supervisory Benchmarks for the Setting of Pillar 2 Own Funds Requirements for Market Risk). Eiginfjárþörf vegna hliðarstarfsemi, þ.m.t. vátryggingastarfsemi, undir stoð 1 og 2 er þó undanskilin matinu.
  3. Eiginfjárþörf vegna skuldabréfa í veltubók er reiknuð út í samræmi við kafla 5.1 í viðauka 2 í viðmiðum Fjármálaeftirlitsins um mat á eiginfjárþörf undir stoð 2 vegna markaðsáhættu (e. Annex 2: Supervisory Benchmarks for the Setting of Pillar 2 Own Funds Requirements for Market Risk).
  4. Eiginfjárþörf vegna óbeinnar stöðutöku í verðbréfum og hrávörum er reiknuð út í samræmi við kafla 2.1 og 2.3 í viðauka 1 í viðmiðum Fjármálaeftirlitsins um mat á eiginfjárþörf undir stoð 2 vegna útlána- og samþjöppunaráhættu (e. Annex 1: Supervisory Benchmarks for the Setting of Pillar 2 Additional Own Funds Requirements for Credit and Concentration Risk).

Með eiginfjárgrunni er átt við eiginfjárgrunn samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 28. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi 1. janúar 2022.

Seðlabanka Íslands, 22. desember 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

(Eiginfjárþörf vegna hlutabréfa í veltubók)+
(Eiginfjárþörf vegna hlutabréfa í fjárfestingabók)+
(Eiginfjárþörf vegna skuldabréfa í veltubók)+
(Eiginfjárþörf vegna óbeinnar stöðutöku í verðbréfum og hrávörum)


Eiginfjárgrunnur

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2021

Tengd mál