Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Heilbrigðismál, Vatnamál, Umhverfismál, Orkumál, Félagsmál, Sorphreinsun, Ríkisstofnanir, Atvinnustarfsemi, Eiturefni - spilliefni, Brunamál, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd, Kirkjumál, Aldraðir, Sóttvarnir, Menningarmál, Börn og unglingar, Áfengismál, Tóbak, Gististaðir, Veitingastaðir

Undirritunardagur

2. júlí 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 82/2026

2. júlí 2026

LÖG

um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI
Breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993.

1. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 3. mgr. 16. gr. og 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.

II. KAFLI
Breyting á sóttvarnalögum, nr. 19/1997.

2. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðisnefndir“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 11. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „Heilbrigðisfulltrúar, samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dýralæknar“ í 1. málsl. kemur: Dýralæknar.
  2. Orðin „viðkomandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. falla brott.
  3. Í stað orðanna „gefa heilbrigðisnefndum“ í 3. málsl. kemur: eftir atvikum gefa Stofnun atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnun.

4. gr.

Orðin „ heilbrigðisfulltrúa, heilbrigðisnefnda“ í fyrirsögn á undan 11. gr. laganna falla brott.

III. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:

  1. 1. mgr. fellur brott.
  2. 10. mgr. orðast svo:
    Faggilding í skilningi laga þessara hefur sömu merkingu og í lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
  3. Í stað tilvísunarinnar „I–IV“ í 17. mgr. kemur: laganna.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:

  1. 1. tölul. orðast svo: eftirlit með atvinnurekstri og annarri starfsemi eða athöfnum sem falla undir þessa grein, útgáfu og efni starfsleyfa, sbr. 7. gr., svo sem nánari tilgreiningu á hvaða starfsemi um er að ræða, og skráningarskyldu, sbr. 8. gr.
  2. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 2. tölul. kemur: sveitarfélaga og Umhverfis- og orkustofnunar.
  3. 4. tölul. fellur brott.
  4. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 5. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
  5. 21. tölul. fellur brott.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:

  1. Á eftir orðunum „þar á meðal ákvæði um“ í 1. tölul. kemur: hvaða starfsemi um er að ræða.
  2. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 18. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
  3. Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 19. tölul. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

8. gr.

1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Allur atvinnurekstur, sbr. viðauka I og II, skal hafa gilt starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út, sbr. þó 7. gr. a og 8. gr.

9. gr.

  1. Í stað orðanna „Útgefanda starfsleyfis“ í 2. og 4. mgr. 6. gr., 3., 4. og 6. mgr. 7. gr., 3. mgr. 7. gr. a, d-lið 1. mgr. 9. gr., 1. mgr. 14. gr., 2. mgr. 15. gr., 29. gr. og 63. gr. b laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
  2. Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í 3. mgr. 6. gr., 3. og 5.–7. mgr. 7. gr., 4. mgr. 9. gr., 1. og 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 15. gr., tvívegis í 1. mgr. 28. gr. og 63. gr. b laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Umhverfis- og orkustofnun gefur út starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.
  2. Í stað orðsins „leyfisveitanda“ í 3. málsl. 5. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ákvæði 3. mgr. þessarar greinar og 3. mgr. 6. gr. eiga aðeins við um atvinnurekstur skv. a- og b-lið viðauka II, falli starfsemin undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Heimilt er þó að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.

11. gr.

Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar og“ í 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. a laganna kemur: stofnana eða.

12. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. Orðin „og IV“ í 1. mgr. falla brott.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Falli starfsemi undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana er þó skylt að gefa út starfsleyfi.
  3. Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 2. mgr. kemur: I og II.
  4. Í stað orðanna „Hlutaðeigandi eftirlitsaðili“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

13. gr.

  1. Í stað viðaukatölunnar „II“ í 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: a-lið viðauka II.
  2. Í stað viðaukatölunnar „IV“ í 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: II.
  3. Í stað viðaukatalnanna „I–IV“ í 1. mgr. 34. gr., 1. og 2. mgr. 36. gr., 1. mgr. 39. gr., 1. mgr. 40. gr., 1., 3. og 4. mgr. 54. gr. og 1. mgr. 55. gr. laganna kemur: I og II.
  4. Í stað orðanna „viðauka I–II“ í 38. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.
  5. Í stað orðanna „viðaukum I og II“ í 2. málsl. 4. mgr. 54. gr. laganna kemur: viðauka I og a-lið viðauka II.

14. gr.

Í stað orðanna „eftirlitsaðila“, „eftirlitsaðilanum“, „eftirlitsaðili“ og „eftirlitsaðilinn“ í lokamálslið 4. mgr. 21. gr., 2. mgr. 40. gr., tvívegis í 2. mgr., 4. mgr. og tvívegis í 5. mgr. 54. gr., tvívegis í 54. gr. a, 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 55. gr. og fyrirsögn 62. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.

15. gr.

Í stað orðsins „leyfisveitanda“ í 5. málsl. 33. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

16. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „skulu Umhverfis- og orkustofnun, sbr. 51. gr., og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, sbr. 47. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skal Umhverfis- og orkustofnun.
  2. 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Sveitarfélögum er heimilt að setja upp og reka mælistöðvar vegna hugsanlegs álags vegna umferðar eða starfsemi.
  3. 2. málsl. 4. mgr. fellur brott.
  4. Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 2. málsl. 6. mgr. falla brott.
  5. 1.–3. málsl. 7. mgr. orðast svo: Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út staðbundnar áætlanir um loftgæði þar sem m.a. koma fram tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Þá skal stofnunin, eftir því sem við á í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög, vinna viðbragðsáætlanir sem taka til skammtímaaðgerða varðandi loftgæði á einstökum svæðum. Umhverfis- og orkustofnun skal gefa út tilkynningar til almennings um loftgæði eftir því sem við á.
  6. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. málsl. 7. mgr. kemur: sveitarfélag í samráði við Umhverfis- og orkustofnun.
  7. Lokamálsliður 7. mgr. fellur brott.

17. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 41. gr. laganna:

  1. Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ í 1. mgr. falla brott.
  2. 2. mgr. fellur brott.

18. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Álit Umhverfis- og orkustofnunar.

19. gr.

Við 43. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Sveitarfélögum er heimilt að hafa samvinnu sín á milli um framkvæmd þeirra verkefna sem þeim eru falin í lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Sveitarstjórnir skulu gera með sér samkomulag um tilhögun samstarfsins, þar á meðal um stjórn, rekstur og kostnaðarskiptingu. Um samvinnu sveitarfélaga fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Heimilt er að fela byggðasamlagi eða öðru sveitarfélagi framkvæmd eftirlits og stjórnvaldsaðgerða samkvæmt lögum þessum.

20. gr.

44., 45., 46., 47., 48. og 49. gr. laganna falla brott.

21. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga“ í 2. mgr. 50. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.

22. gr.

Fyrirsögn XII. kafla laganna verður: Stjórn og skipan.

23. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 51. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „yfirumsjón“ í 2. mgr. kemur: umsjón.
  2. 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
  3. 4. mgr. orðast svo:
    Stofnunin fer því aðeins með beint eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð.
  4. Greinin ásamt fyrirsögn flyst í XII. kafla.

24. gr.

52. gr. laganna fellur brott.

25. gr.

53. gr. laganna ásamt fyrirsögn flyst í XII. kafla.

26. gr.

Fyrirsögn XIII. kafla laganna fellur brott.

27. gr.

2. málsl. 2. mgr. 55. gr. laganna fellur brott.

28. gr.

56. gr. laganna orðast svo:

Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð að starfsemi heilbrigðiseftirlits skuli hljóta faggildingu og þá hvernig að henni skuli staðið.

29. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 58. gr. laganna:

  1. Orðin „Heilbrigðisnefndum og“ í 1. málsl. falla brott.
  2. Við 1. og 2. málsl. bætist: eða Stofnun atvinnuveganna.
  3. Orðin „heilbrigðisnefndar eða“ og „eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.

30. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 59. gr. laganna:

  1. Orðin „og húsdýrahalds“ í 1. tölul. 1. mgr. falla brott.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Sveitarstjórn semur drög að samþykktum og breytingum á þeim og leitar umsagnar Umhverfis- og orkustofnunar.
  3. 3. mgr. orðast svo:
    Sé umsögn Umhverfis- og orkustofnunar neikvæð er samþykktin endursend til sveitarstjórnar með leiðbeiningum um hvað til þurfi svo að jákvæð umsögn fáist.
  4. Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: og eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla.
  5. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Til að knýja á um framkvæmd ráðstafana samkvæmt samþykktum sem settar eru á grundvelli þessarar greinar fer sveitarstjórn með valdsvið og heimildir til beitingar þvingunarúrræða skv. XVII. kafla, að því marki sem sveitarstjórn, en ekki Umhverfis- og orkustofnun, fer með framkvæmd og eftirlit samkvæmt hlutaðeigandi samþykkt.

31. gr.

Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ í 60. gr. laganna falla brott.

32. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 61. gr. laganna:

  1. Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 1. og 4. málsl. 1. mgr. og í 2. mgr. falla brott.
  2. Í stað orðanna „viðkomandi heilbrigðiseftirliti“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  3. Orðin „og heilbrigðisnefnda“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
  4. Orðin „eða heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
  5. Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ í 5. málsl. 3. mgr. falla brott.
  6. Orðin „og sektir sem heilbrigðisnefndir leggja á að frádregnum kostnaði við innheimtu renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits“ í lokamálslið 3. mgr. falla brott.

33. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 62. gr. laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal töku sýna og myndatöku, að öllum þeim stöðum sem lög þessi, reglugerðir og samþykktir ná yfir og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf.
  2. Orðin „í samráði við heilbrigðisnefndir“ í 2. mgr. falla brott.
  3. 4. mgr. fellur brott.

34. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 63. gr. laganna:

  1. Orðin „eða heilbrigðisnefnd“ tvívegis í 1. mgr. falla brott.
  2. 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.

35. gr.

66. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.

36. gr.

Fyrirsögn viðauka I við lögin verður: Iðnaðarstarfsemi, meðhöndlun úrgangs og annað.

37. gr.

Viðauki II við lögin verður svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:

Viðauki II. Önnur mengandi starfsemi og hollustuháttastarfsemi.

a. Önnur mengandi starfsemi:

  1. Aksturs- og/eða kennslubraut.
  2. Bensínstöð.
  3. Bifreiða- og vélaverkstæði.
  4. Bifreiðasprautun.
  5. Bón- og bílaþvottastöð.
  6. Brenna, stærri en 100 m³.
  7. Efnalaug og þvottahús.
  8. Eldi alifugla, annað en í viðauka I.
  9. Eldi sjávar- og ferskvatnslífvera.
  10. Eldi svína, annað en í viðauka I.
  11. Endurvinnsla skipa, sbr. 64. gr. a laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
  12. Flugeldasýning.
  13. Flugvöllur þar sem er áætlunarflug.
  14. Flutningur úrgangs.
  15. Formeðferð, svo sem þvottur, bleiking, mersivinnsla eða litun textíltrefja eða textílefna, önnur en í viðauka I.
  16. Framköllun, t.d. á ljós-, röntgen- og kvikmyndum.
  17. Framleiðsla á aukefnum og hjálparefnum fyrir matvælaiðnað, önnur en í viðauka I.
  18. Framleiðsla á áfengi og gosdrykkjum, önnur en í viðauka I.
  19. Framleiðsla á hreinsi- og þvottaefnum, önnur en í viðauka I.
  20. Framleiðsla á ilmvatni og snyrtivörum, önnur en í viðauka I.
  21. Framleiðsla á spónaplötum, límtré og þess háttar, önnur en í viðauka I.
  22. Framleiðsla glers, önnur en í viðauka I.
  23. Framleiðsla leirvara með brennslu, önnur en í viðauka I.
  24. Framleiðsla lífrænna og ólífrænna efna, önnur en í viðauka I.
  25. Framleiðsla plasts, önnur en í viðauka I.
  26. Garðaúðun og meindýravarnir.
  27. Geymsla gass og annarra hættulegra efna.
  28. Geymsla koldíoxíðs í jörðu.
  29. Glerullar- og steinullarframleiðsla, önnur en í viðauka I.
  30. Hreinsivirki fráveitu sem meðhöndlar meira en 50 pe.
  31. Jarðborun.
  32. Kanínurækt.
  33. Kítín- og kítosanframleiðsla.
  34. Líkbrennsla.
  35. Loðdýrarækt.
  36. Málningarvöruframleiðsla.
  37. Meðferð og vinnsla hráefna úr dýra- og/eða jurtaríkinu vegna matvæla- eða fóðurvinnslu, önnur en í viðauka I.
  38. Meðhöndlun asbests.
  39. Meðhöndlun og förgun spilliefna, þ.m.t. námuúrgangsstaðir, sbr. 14. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, önnur en í viðauka I.
  40. Meðhöndlun seyru, þ.m.t. flutningur, notkun og hreinsun.
  41. Meðhöndlun úrgangs, önnur en í viðauka I.
  42. Móttökustöð fyrir úrgang.
  43. Niðurrif bifreiða og bílapartasala.
  44. Niðurrif mannvirkja.
  45. Olíubirgðastöðvar.
  46. Olíumalar- og malbikunarstöðvar og geymsla olíuefna utan fastra starfsstöðva.
  47. Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla, önnur en í viðauka I.
  48. Prentun þar sem er notkun á mengandi efnum.
  49. Rannsóknir og vinnsla kolvetnis, önnur en í viðauka I.
  50. Ryðvarnarverkstæði.
  51. Saltvinnsla.
  52. Skotvöllur.
  53. Sláturhús, önnur en í viðauka I.
  54. Smurstöð.
  55. Spennistöð þar sem spennar innihalda yfir 2.000 lítra af olíu.
  56. Starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi.
  57. Steypueiningaverksmiðja.
  58. Steypustöð.
  59. Sútunarverksmiðjur, aðrar en í viðauka I.
  60. Trésmíðaverkstæði, önnur en í viðauka I.
  61. Vefnaðar- og spunaverksmiðjur.
  62. Vinnsla á hrájárni eða stáli, önnur en í viðauka I.
  63. Vinnsla gúmmís, önnur en í viðauka I.
  64. Vinnsla jarðefna, þ.m.t. legsteinagerð, önnur en í viðauka I.
  65. Vinnsla járnlausra málma, önnur en í viðauka I.
  66. Vinnsla málma, önnur en í viðauka I.
  67. Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
  68. Yfirborðsmeðferð efna, hluta eða afurða með lífrænum leysum, önnur en í viðauka I.
  69. Yfirborðsmeðferð málma eða plastefna, önnur en í viðauka I.
  70. Æfingasvæði slökkviliðs.

b. Hollustuháttastarfsemi:

  1. Almenningssalerni.
  2. Baðstaður í náttúrunni, flokkur 1 og 2.
  3. Daggæsla hjá dagforeldrum með sex börn eða fleiri.
  4. Dvalarheimili.
  5. Fangagæsla.
  6. Fangelsi.
  7. Gististaður, að undanskilinni heimagistingu.
  8. Heilsuræktarstöð.
  9. Heimili og stofnanir fyrir börn og unglinga með sex börn eða fleiri.
  10. Hestaleiga og/eða reiðskóli.
  11. Íþróttahús.
  12. Íþróttamiðstöð.
  13. Íþróttavöllur.
  14. Leiksvæði, önnur en leiksvæði við fjöleignarhús með sameiginlegu svæði.
  15. Sambýli þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn.
  16. Samgöngumiðstöð.
  17. Samkomuhús, þ.m.t. veitingastaður.
  18. Skemmti- og þemagarður, þ.m.t. tívolí og dýragarður.
  19. Skólahúsnæði.
  20. Starfsmannabúðir.
  21. Starfsmannabústaðir.
  22. Starfsemi þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta.
  23. Stofa þar sem fram fer húðrof.
  24. Stofa þar sem fram fer meðferð á líkama án húðrofs.
  25. Sund- og baðstaður.
  26. Tjald- og hjólhýsasvæði.
  27. Útihátíð.
  28. Verslunarmiðstöð.

38. gr.

Viðauki IV við lögin fellur brott.

39. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr. er heilbrigðisnefndum heimilt, frá birtingu laga þessara og fram til 1. janúar 2027, að gefa út eða breyta starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem fellur undir viðauka IV við lögin án þess að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi opinberlega og veita frest til athugasemda. Hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd er þó heimilt að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda skv. 3. mgr. 6. gr. og 3. mgr. 7. gr., eftir því sem við á, ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.

IV. KAFLI
Breyting á áfengislögum, nr. 75/1998.

40. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 4. tölul. 4. mgr. 6. gr. a laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.

V. KAFLI
Breyting á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000.

41. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlits“ í 3. mgr. 16. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.

42. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðisfulltrúi viðkomandi sveitarfélags“ í 2. málsl. 1. mgr. 29. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

VI. KAFLI
Breyting á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.

43. gr.

Á undan orðinu „upplýsingar“ í i-lið 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: veitingu leyfis til smásölu tóbaksvara, sbr. 11. mgr. 8. gr., og.

44. gr.

5. gr. b laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar.

Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með smásölu tóbaks.

45. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. 2. málsl. 7. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. og 2. málsl. 11. mgr. kemur: ÁTVR.
  3. 5. málsl. 11. mgr. orðast svo: ÁTVR er heimilt að innheimta gjald fyrir leyfi og Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir eftirlit með starfsemi leyfishafa.
  4. 2. málsl. 13. mgr. fellur brott.

46. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 11. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

47. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Umhverfis- og orkustofnunar, hafa eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgjast með því í umdæmi sínu“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með smásölustöðum tóbaks og fylgist með því. 
  2. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar og getur þá nefndin“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar og getur þá stofnunin.
  3. Í stað orðanna „heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  4. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: stofnuninni.
  5. Í stað orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 4. mgr. kemur: ÁTVR og Umhverfis- og orkustofnunar.

48. gr.

Í stað orðsins „Heilbrigðisnefndir“ í 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

49. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 20. gr. a laganna:

  1. Við 1. tölul. bætist: og framkvæmd leyfisveitinga, sbr. 1. mgr. 5. gr.
  2. 3. tölul. orðast svo: verkefni Umhverfis- og orkustofnunar um framkvæmd eftirlits, sbr. 5. gr. b, að höfðu samráði við ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála.

VII. KAFLI
Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

50. gr.

2. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:

Umhverfis- og orkustofnun fer með eftirlit með framkvæmd laga þessara.

51. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:

  1. Orðin „og eftir atvikum heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
  2. Í stað orðsins „útgefandi“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  3. 2. mgr. orðast svo:
    Umhverfis- og orkustofnun veitir starfsleyfi samkvæmt lögum þessum.
  4. Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis“ og „Útgefandi starfsleyfis“ í 4. mgr., 5. mgr., tvívegis í 9. mgr., 10. mgr. og 11. mgr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.

52. gr.

Í stað orðanna „Útgefandi starfsleyfis“ í 2. málsl. 2. mgr. 16. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

53. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:

  1. 5. málsl. 1. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðanna „útgefanda starfsleyfis skv. 2. mgr. 14. gr.“ í 2. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnunar.

54. gr.

Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndir“ í 2. mgr. 24. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

55. gr.

Í stað orðanna „útgefandi starfsleyfis“ í z-lið 43. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

56. gr.

Orðin „eða viðkomandi eftirlitsaðila“ tvívegis í 60. gr. laganna falla brott.

57. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 61. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „eftirlitsaðili“ í 1. mgr. kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  2. Orðin „Umhverfis- og orkustofnun hefur“ í 1. mgr. falla brott.
  3. Orðin „eða viðkomandi eftirlitsaðila“ í 6. mgr. falla brott.

58. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 64. gr. a laganna:

  1. 2. mgr. orðast svo:
    Umhverfis- og orkustofnun veitir starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa. Starfsleyfi vegna endurvinnslu skipa yfir 500 brúttótonnum skal vera til fimm ára í senn, en að öðru leyti gilda ákvæði 14.–17. gr. um útgáfu starfsleyfa eftir því sem við á. Um starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa undir 500 brúttótonnum gilda ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
  2. 4. mgr. fellur brott.

59. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 65. gr. laganna:

  1. 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
  2. Orðið „einnig“ í 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
  3. Í stað orðsins „heilbrigðiseftirlitsins“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: eftirlitsins.
  4. Orðin „og öðrum eftirlitsaðilum samkvæmt lögum þessum“ í 2. mgr. falla brott.
  5. 5. mgr. fellur brott.

60. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 66. gr. laganna:

  1. Orðin „og heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 1. mgr. falla brott.
  2. Orðin „eða heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit“ í 4. mgr. falla brott.

61. gr.

2. mgr. 67. gr. laganna fellur brott.

VIII. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.

62. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 4. gr. laganna:

  1. Orðin „heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna eða“ í 2. málsl. falla brott.
  2. Orðin „eða við hlutaðeigandi heilbrigðiseftirlit eftir því sem við á“ í 3. málsl. falla brott.
  3. Lokamálsliður fellur brott.

63. gr.

Orðin „heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna“ í 5. gr. laganna falla brott.

64. gr.

Orðin „og ef við á hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar“ í 7. mgr. 8. gr. laganna falla brott.

65. gr.

Orðin „og heilbrigðisnefnda viðkomandi sveitarfélaga“ í 5. mgr. 12. gr. laganna falla brott.

66. gr.

Orðin „og skal hann vera starfandi heilbrigðisfulltrúi“ í 1. mgr. 13. gr. laganna falla brott.

67. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 14. gr. laganna:

  1. Orðin „og heilbrigðisnefnd“ í 3. málsl. a-liðar falla brott.
  2. Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 4. og 5. málsl. a-liðar kemur: Umhverfis- og orkustofnun.
  3. 6. málsl. a-liðar fellur brott.
  4. 3. málsl. b-liðar fellur brott.
  5. Orðin „heilbrigðisnefnd eða“ í 4. málsl. b-liðar falla brott.

68. gr.

3. mgr. 21. gr. laganna fellur brott.

69. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:

  1. Orðin „eða heilbrigðisnefnd, þar sem það á við“ í 1. mgr. falla brott.
  2. Lokamálsliður 2. mgr. fellur brott.
  3. Orðin „en tilkynna skal það hluteigandi heilbrigðisnefnd“ í 3. mgr. falla brott.

70. gr.

Orðin „eða viðkomandi heilbrigðisnefnd, sbr. 2. mgr. 4. gr.“ tvívegis í 23. gr. og í 1. mgr. 24. gr. laganna falla brott.

IX. KAFLI
Breyting á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007.

71. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. mgr. 10. gr., orðsins „heilbrigðisnefndar“ í 2. mgr. 10. gr., orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 5. mgr. 15. gr., orðsins „heilbrigðisnefnda“ í 5. mgr. 17. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun og Stofnun atvinnuveganna.

X. KAFLI
Breyting á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009.

72. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar“ í 4. mgr. og „heilbrigðisnefnd“ tvívegis í 5. mgr. 4. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.

XI. KAFLI
Breyting á lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011.

73. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. Orðin „og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
  2. Orðin „í samvinnu við heilbrigðisnefndir og“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
  3. Orðin „frá hlutaðeigandi heilbrigðisnefndum“ í 3. mgr. falla brott.

74. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga“ í 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

75. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: sveitarfélög.
  2. Í stað orðanna „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: sveitarfélögum.
  3. Í stað orðanna „Þá er heimilt“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Heimilt er.

XII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.

76. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðisnefndar sveitarfélags“ og „viðkomandi heilbrigðisnefnd“ í 4. málsl. 2. mgr. 9. gr. og 2. málsl. 2. mgr. 10. gr. laganna kemur: Stofnunar atvinnuveganna; og: Stofnun atvinnuveganna.

77. gr.

Orðin „hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna falla brott.

78. gr.

Í stað orðanna „hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd“ og „heilbrigðisnefndar“ í 2. málsl. 1. mgr. 13. gr., 2. málsl. 1. mgr. 14. gr. og 2. málsl. 3. mgr. 15. gr. laganna kemur: Stofnun atvinnuveganna; og: Stofnunar atvinnuveganna.

79. gr.

3. og 4. málsl. 23. gr. laganna falla brott.

80. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:

  1. 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðanna „og viðkomandi heilbrigðisnefnd skulu“ í 4. mgr. kemur: skal.

81. gr.

Orðin „eða heilbrigðisnefndar“ í 1. mgr. 30. gr. laganna falla brott.

XIII. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.

82. gr.

Orðin „heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 15. tölul. 5. gr. laganna falla brott.

83. gr.

6. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.

84. gr.

Í stað orðanna „um getur í 2. tölul. 6. gr.“ í 6. tölul. 7. gr. laganna kemur: heyrir undir starfsleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út og/eða hefur eftirlit með á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

85. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:

  1. Orðin „heilbrigðisnefndum sveitarfélaga“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.
  2. Orðin „hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.
  3. 4. mgr. fellur brott.

XIV. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, nr. 40/2015.

86. gr.

Í stað orðsins „heilbrigðisnefnd“ í 1. málsl. 2. mgr. og 5. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

87. gr.

Orðið „heilbrigðisnefndar“ í 1. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.

XV. KAFLI
Breyting á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021.

88. gr.

Í stað orðanna „heilbrigðisnefndir sveitarfélaga“ í 2. málsl. 3. mgr. 22. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun.

XVI. KAFLI
Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.

89. gr.

Á eftir 4. mgr. 2. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Umhverfis- og orkustofnun skal hafa starfsfólk á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum.

90. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.

Ákvæði til bráðabirgða.

Starfsfólk sem er í starfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga við gildistöku laga þessara og sinnir þeim verkefnum sem færast til Umhverfis- og orkustofnunar samkvæmt lögum þessum skal eiga forgangsrétt til starfa við Umhverfis- og orkustofnun sem verða til vegna lagabreytinganna. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.

Í tilviki starfsfólks heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, sem ráðið verður hjá nýrri stofnun, skal starfsaldur þess í fráfarandi starfi fyrir heilbrigðiseftirlit teljast til starfsaldurs hjá nýrri stofnun hvað varðar rétt til námsleyfis og lengd uppsagnarfrests samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Að öðru leyti gilda ákvæði gildandi kjarasamninga um inntak réttindanna.

Gjört á Bessastöðum, 2. júlí 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Jóhann Páll Jóhannsson.

A deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál