Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Skipulagsmál, Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál
Undirritunardagur
28. maí 2025
Útgáfudagur
5. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 25/2025
28. maí 2025
LÖG
um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (samræming við EES-reglur).
Handhafar valds forseta Íslands
samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:
1. gr.
Við a-lið 1. mgr. 2. gr. laganna bætist: sem marka stefnu fyrir leyfisveitingar til framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka við lög þessi.
2. gr.
Í stað talnanna „10“ og „50“ í tölul. 3.08 og 3.09 í 1. viðauka við lögin kemur: 40; og: 80.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 28. maí 2025.
Kristrún Frostadóttir.
Bryndís Haraldsdóttir.
(L. S.)
Benedikt Bogason.
Jóhann Páll Jóhannsson.
A deild - Útgáfud.: 5. júní 2025