Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

15. janúar 2026

Útgáfudagur

30. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 68/2026

15. janúar 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Ásgarður, Skógarholt, spennistöð.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til frístundabyggðar Ásgarðs. Í breytingunni felst að lóð fyrir spennistöð er bætt inn á svæði 3, en spennistöðin er til staðar. Lóðin fær staðfangið Skógarholt, spennistöð, og þar er heimilt að byggja allt að 10 m³ hús.

Samþykkt í sveitarstjórn 15. desember 2025.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 15. janúar 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026

Tengd mál