Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar
Undirritunardagur
16. júní 2016
Útgáfudagur
30. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 77/2016
16. júní 2016
LÖG
um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (hámarksgreiðslur sjúkratryggðra og þjónustustýring).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. laganna:
- Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að ákveða að gjald fyrir þjónustuna skuli vera hærra sæki sjúkratryggður þjónustuna á aðra heilsugæslustöð eða til annars heimilislæknis en hann er skráður hjá.
- Við 2. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að ákveða að gjald fyrir þjónustu sérfræðilækna skuli vera lægra ef sjúkratryggður sækir þjónustuna með tilvísun frá heilsugæslustöð eða heimilislækni.
- Við 3. tölul. 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Heimilt er að ákveða að gjald fyrir þjónustuna skuli vera lægra ef sjúkratryggður sækir þjónustuna með tilvísun frá heilsugæslustöð eða heimilislækni. Þá er heimilt að ákveða að gjald vegna þjónustu fyrir börn verði lægra eða falli niður ef þjónustan er sótt með tilvísun frá heilsugæslustöð eða heimilislækni.
-
Á
eftir
1.
mgr.
koma
þrjár
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Greiðslur sjúkratryggðs fyrir heilbrigðisþjónustu skv. 17.–19. gr. og 21.–22. gr. mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn er nýttur við ákvörðun á greiðslum sjúkratryggðs við kaup á heilbrigðisþjónustu. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en hámarksgreiðsla sjúkratryggðs í almanaksmánuði, sbr. 3. mgr. Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af hámarksgreiðslum um hver mánaðamót, óháð greiðslum sjúkratryggðs.
Ráðherra ákveður með reglugerð hámarksgreiðslur sjúkratryggðs í hverjum almanaksmánuði fyrir heilbrigðisþjónustu skv. 17.–19. gr. og 21.–22. gr. Heimilt er að ákveða að kostnaður vegna tiltekinnar þjónustu falli utan hámarksgreiðslna sjúkratryggðra og teljist ekki í afsláttarstofn, svo sem kostnaður vegna námskeiða og heilbrigðisskoðana í tengslum við leyfisveitingar. Hámarksgreiðsla skal vera lægri hjá öldruðum, öryrkjum og börnum og skal ekki vera hærri en 2/3 hlutar af greiðslum annarra sjúkratryggðra.
Við ákvörðun greiðsluþátttöku sjúkratryggðs vegna heilbrigðisþjónustu, sbr. 17.–19. gr. og 21.–22. gr., skal leggja saman afsláttarstofn og greiðslur sjúkratryggðs við kaup á heilbrigðisþjónustu. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla, sbr. 3. mgr., greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu í samræmi við reglugerð, sbr. 1. mgr. Kostnaður umfram hámarksgreiðslu sjúkratryggðs greiðist af sjúkratryggingastofnuninni ef um er að ræða þjónustu sem stofnunin tekur þátt í að greiða, annars af viðkomandi heilbrigðisstofnun.
2. gr.
Á eftir 29. gr. a laganna kemur ný grein, 29. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Miðlægur heilbrigðisþjónustugrunnur.
Sjúkratryggingastofnunin
ber
ábyrgð
á
og
starfrækir
gagnagrunn
með
þeim
upplýsingum
um
greiðslur
sjúkratryggðra
sem
nauðsynlegar
eru
vegna
greiðsluþátttökukerfis
heilbrigðisþjónustunnar
til
að
reikna
út
greiðslur
þeirra
og
greiðsluþátttöku
sjúkratrygginga
við
kaup
á
heilbrigðisþjónustu.
Í
gagnagrunninn
skal
skrá
upplýsingar
um
greiðslur
sjúkratryggðs
vegna
heilbrigðisþjónustu,
tegund
heilbrigðisþjónustu
og
stöðu
sjúkratryggðs
innan
kerfisins.
Heilbrigðisstofnunum
og
heilbrigðisstarfsmönnum
sem
innheimta
gjöld
vegna
heilbrigðisþjónustu
sem
fellur
undir
hámarksgreiðslur
sjúkratryggðra,
sbr.
3.
mgr.
29.
gr.,
er
skylt
að
tengjast
gagnagrunninum,
nýta
upplýsingar
gagnagrunnsins
við
útreikning
á
greiðsluþátttöku
og
veita
upplýsingar
í
hann.
Ráðherra
setur
reglugerð
um
rekstur
gagnagrunnsins.
Þar
skal
m.a.
kveðið
á
um:
- hvaða upplýsingar skuli skrá í gagnagrunninn,
- eyðingu skráðra upplýsinga,
- aðgang heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna að upplýsingum í gagnagrunninum,
- skyldu heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna til að tengjast gagnagrunninum og til að nýta upplýsingar gagnagrunnsins við útreikning á greiðsluþátttöku, og
- skyldu heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna til að veita upplýsingar í gagnagrunninn.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. febrúar 2017.
Ákvæði til bráðabirgða.
Við gildistöku laga þessara skal afsláttarstofn miðast við greiðslur sjúkratryggðs fyrir þjónustu skv. 1.–4. tölul. 1. mgr. 29. gr. laganna síðustu fimm mánuði fyrir gildistöku.
Gjört á Bessastöðum, 16. júní 2016.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Kristján Þór Júlíusson.
A deild - Útgáfud.: 30. júní 2016