Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
20. mars 2020
Útgáfudagur
6. apríl 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 311/2020
20. mars 2020
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
-
Deiliskipulag,
Bratti
í
Botnsúlum,
L170796.
Deiliskipulagið tekur til Bratta í Botnsúlum, L170796, norðvestan við Syðstu-Súlu. Á staðnum var lítill skáli sem hefur verið fjarlægður. Til stendur að reisa nýjan skála allt að 80 m² að stærð, fyrir allt að 30 manns í gistingu. Skipulagssvæðið er um 0,5 ha að stærð. Bratti er innan Þingvallaþjóðgarðs og vatnsverndarsvæðis Þingvallavatns. Svæðið er í aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem afþreyingar- og ferðamannasvæði.
Samþykkt í sveitarstjórn 1. október 2019. -
Deiliskipulag,
Fremstaver.
Deiliskipulagið tekur til Fremstavers, sunnan við Bláfell, vestan Hvítár í Bláskógabyggð. Á svæðinu eru alls 3 byggingar, fjallaskáli, salernishús og hesthús. Gistipláss er fyrir 30 manns. Heimilt verður að stækka núverandi skála um allt að 60 m² eða byggja nýjan skála allt að 100 m². Með því verður til gistirými fyrir allt að 50 manns. Þá er heimild fyrir byggingu allt að 200 m² hesthúss sem mun bæta aðstöðu fyrir hestamenn. Stærð svæðis er um 2 ha. Fremstaver er í aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem fjallasel.
Samþykkt í sveitarstjórn 1. október 2019. -
Deiliskipulag,
Skálpanes.
Deiliskipulagið tekur til Skálpaness, fjallaskála við Langjökul, vestan Geldingafells. Á svæðinu eru alls 2 byggingar fyrir ferðaþjónustu og starfsfólk. Ekki er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu, einungis viðhaldi á núverandi mannvirkjum. Stærð svæðis er um 1 ha. Skálpanes er í aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem afþreyingar- og ferðamannasvæði.
Samþykkt í sveitarstjórn 1. október 2019. -
Deiliskipulag,
Svartárbotnar
(Gíslaskáli).
Deiliskipulagið tekur til Svartárbotna (Gíslaskála) á Kili. Á staðnum er rekin þjónusta við ferðamenn. Þar er einnig gangnamannahús og aðstaða til að taka á móti hestahópum. Skipulagssvæðið er tæpir 2 ha að stærð. Í Gíslaskála sem er 270 m² að stærð, er pláss fyrir 45-50 manns. Til stendur að stækka skálann fyrir allt að 70 manns í gistingu og/eða að byggja tvo nýja skála, auk þess að bæta aðstöðu fyrir hesta. Á svæðinu er einnig 96 m² hesthús og 20 m² starfsmannahús. Svæðið er í aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 skilgreint sem afþreyingar- og ferðamannasvæði.
Samþykkt í sveitarstjórn 1. október 2019. -
Deiliskipulagsbreyting,
Launrétt
1,
L167386.
Lóðin Launrétt 1, L167386, í Laugarási breytist í verslunar- og þjónustusvæði þannig að heimilt verði að veita rekstrarleyfi fyrir gistingu.
Samþykkt í sveitarstjórn 29. ágúst 2019.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 20. mars 2020.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2020