Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

6. nóvember 2020

Útgáfudagur

20. nóvember 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1127/2020

6. nóvember 2020

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 60/2019 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „5,0“ í 1. málslið töluliðar I í 3. mgr. 13. gr. reglnanna, undir fyrirsögninni „Nánari ákvæði einstakra deilda um námsmat og meistarapróf“, kemur: 6,0.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008.

Háskóla Íslands, 6. nóvember 2020.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 20. nóvember 2020

Tengd mál