Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
8. mars 2024
Útgáfudagur
5. júlí 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 30/2024
8. mars 2024
AUGLÝSING
um gildistöku viðbótarsamnings við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Svíþjóðar.
Viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn frá 4. apríl 1949 um aðild Konungsríkisins Svíþjóðar, sem gerður var í Brussel 5. júlí 2022, öðlaðist gildi 7. mars 2024, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2022, þar sem viðbótarsamningurinn er birtur.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 8. mars 2024.
Bjarni Benediktsson.
Martin Eyjólfsson.
C deild - Útgáfud.: 5. júlí 2024