Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Innanríkisráðuneytið (2011-2017)

Málaflokkur

Dómsmál

Undirritunardagur

20. september 2016

Útgáfudagur

23. september 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 99/2016

20. september 2016

LÖG

um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um meðferð einkamála (endurupptaka).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI

Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, með síðari breytingum.

1. gr.

2. málsl. 1. mgr. 214. gr. laganna orðast svo: Sé beiðni tekin til greina skal fyrri dómur í málinu halda gildi sínu þar til nýr dómur hefur verið kveðinn upp.

II. KAFLI

Breyting á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum.

2. gr.

2. og 3. málsl. 3. mgr. 168. gr. laganna orðast svo: Fallist nefndin á beiðni skal fyrri dómur í málinu halda gildi sínu þar til nýr dómur hefur verið kveðinn upp. Ákvörðun nefndarinnar um endurupptöku hindrar ekki aðför eftir dómi.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 20. september 2016.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Ólöf Nordal.

A deild - Útgáfud.: 23. september 2016

Tengd mál