Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Upplýsingar
Undirritunardagur
23. nóvember 2023
Útgáfudagur
24. nóvember 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1265/2023
23. nóvember 2023
AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.
1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Auðkenni ehf. skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 23. nóvember 2026.
2. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 23. nóvember 2023.
Katrín Jakobsdóttir.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfud.: 24. nóvember 2023