Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarrn

Málaflokkur

Sjávarútvegur

Undirritunardagur

4. júlí 2019

Útgáfudagur

18. júlí 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 678/2019

4. júlí 2019

REGLUGERÐ

um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2018/2019, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2018, skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem nemur samtals 893 þorskígildislestum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 – 2005/2006 að frádregnum afla í innfjarðarrækju fiskveiðiársins 2018/2019 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 152 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 132 þorskígildislestir í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildislestir í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildislestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildislestir í hlut báts í norðurfjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2018/2019 skal á fiskveiðiárinu 2019/2020 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildislestum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildislestir í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2019. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

Tegundir Lestir upp úr sjó Þorskígildislestir
Þorskur 1.519 1.276
Ýsa 229 192
Ufsi 453 209
Steinbítur 47 25
Gullkarfi 219 151
Keila 16 6
Langa 30 17
Samtals: 2.513 1.876

4. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2019/2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Erna Jónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2019

Tengd mál