Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjallabyggð
Málaflokkur
Sorphreinsun, Fjallabyggð
Undirritunardagur
13. desember 2024
Útgáfudagur
27. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1602/2024
13. desember 2024
GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu í Fjallabyggð.
1. gr.
Sorphirðugjöld greiðast árlega sem hér greinir:
| Íbúðarhúsnæði | 95.000 kr. í sorphirðugjald |
| Frístundahús (á skipulögðum frístundasvæðum) | 47.500 kr. í sorphirðugjald |
Innifalið í sorphirðugjaldi er eitt ílát fyrir blandaðan úrgang, eitt ílát fyrir pappa og pappír, eitt ílát fyrir lífrænan úrgang og eitt ílát fyrir plast.
Sorpgjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur endurvinnslu- og grenndarstöðva.
Gjald þetta er innheimt árlega samhliða fasteignagjöldum.
2. gr.
Gjald fyrir eyðingu á dýrahræjum er innheimt af búfjáreigendum, sem eru með skráðan bústofn samkvæmt búfjárskýrslum Búnaðarstofu. Dýrahræin verða sótt til búfjáreigenda vikulega frá apríl til október og á tveggja vikna fresti frá nóvember til mars og komið í viðeigandi meðhöndlun.
Gjald fyrir söfnun og förgun dýraleifa í Fjallabyggð verður sem hér segir á árinu 2025:
| Sauðfé / geitfé | 150 kr. /grip |
| Nautgripir | 900 kr. /grip |
| Geldneyti / nautkálfar | 500 kr. /grip |
| Hross | 600 kr. /grip |
| Grísir | 420 kr. /grip |
| Hænsn | 5 kr. /grip |
Gjald fyrir söfnun og eyðingu á dýrahræjum miðast við meðaltalsafföll í hefðbundnum búrekstri. Ekki er ætlast til að býli með umfangsmikla sláturstarfsemi nýti þjónustuna fyrir sláturúrgang. Þeim aðilum ber að semja beint við þjónustuaðila um förgun á sláturúrgangi.
Fjöldi gjalddaga verða tíu. Gjöld sem ekki ná 1.000 kr. falla niður. Ef gjaldið nær ekki 15.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga.
3. gr.
Móttökugjöld fyrir flokkaðan úrgang:
Rekstraraðilar:
Greiða
fyrir
móttöku
alls
úrgangs,
samkvæmt
vigt/rúmmáli.
Heimilissorp:
Allir
sem
greiða
sorphirðugjald
eða
sorpeyðingargjald
fá
árlega
rafrænt
klippikort
sem
inniheldur
losun
á
4
m³
af
gjaldskyldum
úrgangi
og
gildir
út
árið.
Til
að
komast
inn
á
móttökustöðvar
þurfa
notendur
að
sýna
klippikort.
Einungis
er
klippt
fyrir
gjaldskyldan
úrgang
og
tekið
er
á
móti
ógjaldskyldum
úrgangi
án
klipps.
Tilgangur
klippikortsins
er
að
flokkun
verði
markvissari
og
að
kostnaður
verði
greiddur
af
þeim
sem
stofna
til
hans.
Kortið
veitir
aðgang
að
svæðinu
og
því
er
nauðsynlegt
að
hafa
klippikortið
meðferðis
þegar
farið
er
á
gámasvæðið
hvort
sem
um
gjaldskyldan
eða
ógjaldskyldan
úrgang
er
að
ræða.
Hvert
klipp
er
fyrir
0,25
m³
sem
samsvarar
240
lítra
heimilistunnu.
Ef
kortið
dugir
ekki
út
árið
er
hægt
að
kaupa
aukakort
sem
inniheldur
losun
á
1
m³
af
gjaldskyldum
úrgangi
eða
sem
nemur
fjórum
klippum.
Nýtt
aukakort
kostar
6.000
kr.
og
er
ótímabundið.
Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.
6. gr.
Til tryggingar á greiðslu skv. gjaldskrá um sorphirðu í Fjallabyggð er lögveðsréttur í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga. Öll verð í gjaldskránni eru án virðisaukaskatts.
7. gr.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt 12. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Fjallabyggð. Gjaldskráin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar 12. desember 2024 og öðlast gildi 1. janúar 2025 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1543/2023 úr gildi.
Fjallabyggð, 13. desember 2024.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024