Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húnabyggð

Málaflokkur

Húnavatnssýslur, Gæludýr

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

30. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1702/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir katta- og hundahald í Húnabyggð.

1. gr.

Af hundum og köttum í þéttbýli Húnabyggðar skal bæjarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari sem eru ætluð til að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald á Blönduósi, nr. 242/2004, og samþykkt um kattahald í Blönduósbæ, nr. 1121/2005.

2. gr.

Við umsókn um skráningu hunds í fyrsta sinn skal innheimta skráningargjald að fjárhæð 4.390 kr. ásamt árlegu leyfisgjaldi vegna hunds að fjárhæð 13.650 kr. miðað við heilt ár. Við umsókn um skráningu kattar í fyrsta sinn skal innheimta skráningargjald að fjárhæð 4.390 kr. ásamt árlegu leyfisgjaldi vegna katta að fjárhæð 4.980 kr. miðað við heilt ár. Leyfisgjaldið lækkar svo eftir því sem líður á árið þegar kemur til fyrstu skráningar, gjaldið er í janúar - mars 100%, apríl - júní 75%, júlí - september 50% og október - desember 25%.

Leyfisgjald er ekki endurgreitt þrátt fyrir breytingar á katta- eða hundahaldi innan ársins.

3. gr.

Greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu hunda er innifalin í gjaldi sem innheimt er samkvæmt 2. gr. Í þessu sambandi vísast til e- og f-liðar 2. gr. samþykktar um hundahald á Blönduósi, nr. 242/2004, sem kveða á um skyldur hundaeigenda til að hafa hunda sína ábyrgðartryggða og er tryggingin innifalin í gjaldinu enda sé það í skilum. Árleg hundahreinsun er á ábyrgð eigenda og framkvæmd hennar í höndum hundaeigenda. Húnabyggð auglýsir tvo daga á ári þar sem boðið er upp á hundahreinsun sem er innifalin í gjaldinu. Að öðrum kosti ber þeim að snúa sér til dýralæknis sem annast hana á kostnað hundaeigenda.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds eða kattar skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:

Fyrsta afhending 14.000 kr.
Önnur afhending 24.910 kr.
Þriðja afhending  38.560 kr.
Við afhendingu hunds/kattar sem ekki er gilt leyfi fyrir  30.260 kr.

Að auki skal umráðamaður hunds/kattar greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds/kattar. Óskráða hunda/ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

5. gr.

Gjalddagi leyfisgjalda er 1. mars og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

6. gr.

Eigendur blindra-, leitar- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu gjalda samkvæmt 2. og 3. gr., enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi.

7. gr.

Ofangreind gjaldskrá sveitarstjórnar Húnabyggðar staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um hundahald á Blönduósi, nr. 242/2004, og samþykkt um kattahald í Blönduósbæ, nr. 1121/2005, til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1801/2024.

Blönduósi, 15. desember 2025.

Pétur Arason sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026

Tengd mál