Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

29. janúar 2025

Útgáfudagur

12. febrúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 158/2025

29. janúar 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

5.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/2894 frá 18. nóvember 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 5.3.
6.2 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/2897 frá 18. nóvember 2024 um breytingu á reglugerð(ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 6.2.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2025.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
utanríkisráðherra.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2025

Tengd mál