Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Stjórnarráð Íslands

Undirritunardagur

31. janúar 2022

Útgáfudagur

31. janúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 5/2022

31. janúar 2022

FORSETAÚRSKURÐUR

um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:

  1. forsætisráðuneyti,
  2. dómsmálaráðuneyti,
  3. félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
  4. fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  5. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti,
  6. heilbrigðisráðuneyti,
  7. innviðaráðuneyti,
  8. matvælaráðuneyti,
  9. menningar- og viðskiptaráðuneyti,
  10. mennta- og barnamálaráðuneyti,
  11. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
  12. utanríkisráðuneyti.

Úrskurður þessi öðlast gildi 1. febrúar 2022. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 118 frá 7. desember 2018 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Gjört á Bessastöðum, 31. janúar 2022.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.

A deild - Útgáfud.: 31. janúar 2022

Tengd mál