Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður

Undirritunardagur

16. desember 2024

Útgáfudagur

30. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1654/2024

16. desember 2024

REGLUGERÐ

um (42.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 115. og 116. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3108 frá 6. desember 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3141 frá 11. desember 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðirnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 61/2024.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 16. desember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2024

Tengd mál