Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

18. apríl 2023

Útgáfudagur

12. júní 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 574/2023

18. apríl 2023

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar, nr. 408/2022, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 47. gr. samþykktarinnar:

Við C-lið bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár.
  2. Barnaverndarþjónusta Eyjafjarðar. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar fer Akureyrarbær með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum.

2. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 18. apríl 2023.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Hafdís Gísladóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. júní 2023

Tengd mál