Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Ölfus

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

3. desember 2025

Útgáfudagur

5. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1312/2025

3. desember 2025

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Akurholt – stofnun lands (Hólsakur), óveruleg deiliskipulagsbreyting.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. nóvember 2025 óverulega deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Akurholts. Breytingin felst í afmörkun nýs lands (Hólsakur) utan um 25 lóðir innan landnýtingarreits ÍB33.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Vesturbyggð, 3.-4. áfangi – uppfærðir byggingarskilmálar, óveruleg deiliskipulagsbreyting.

Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. nóvember 2025, óverulega deiliskipulagsbreytingu fyrir Vesturbyggð 3.-4. áfanga. Breytingunni er ætlað að skerpa á skilmálum varðandi 2ja hæða raðhús syðst í skipulaginu. Mænisstefna er skilgreind og mænishæð aukin úr 7,5 m í 9,5 m.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Þorlákshöfn, 3. desember 2025.

Sigurður Steinar Ásgeirsson,

sviðsstjóri skipulags- og lögfræðisviðs.

B deild — Útgáfudagur: 5. desember 2025

Tengd mál